Pingdom Check

Róm - borgin eilífa

Borgin eilífa og dásamlega

Komdu með í skemmtilega og fræðandi ferð til Rómar með okkar einstaklega fróða og þaulreynda fararstjóra, Guðmundi V. Karlssyni. 

10. apríl - 14. apríl, 4 nætur

Innifalið: Flug, gisting á 4 stjörnu hóteli með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, gönguferð með fararstjóra um miðborg Rómar.

Valkvæðar skoðunarferðir: Vatikanið og Colosseum / Forum Romanum

Í Rómarborg er meira að skoða en í nokkurri annarri borg í heiminum og aðeins er hægt að krafsa í yfirborðið á fáum dögum. Helsti kostur borgarinnar er þó að stutt er á milli allra áhugaverðu staðanna en það er þægilegt að ganga í Róm og alls staðar eru garðar og torg til að hvíla lúin bein. 

Fáar borgir vekja aðra eins aðdáun og heilla jafn mikið og Rómarborg þar sem fortíð og nútíð renna saman á einstakan máta.
Borgin eilífa hefur hún verið kölluð og ber nafn með rentu. Rómaborg hefur um aldir verið sögusvið keisara, páfa og pílagríma sem lagt hafa leið sína til borgarinnar. Engin borg stenst samanburð við Róm þegar kemur að sögufrægum stöðum og byggingum. Hér er Péturskirkjan, Vatíkanið, Sixtínska kapellan með stórkostlegum málverkum eftir Michelangelo og aðra listamenn, Rómartorgið eða Foro Romano, Kólósseum, Panþeon og Navónutorg. 

Risavaxið listasafn

Hér skópu frægustu meistarar endurreisnarinnar og barrokktímans sín fegurstu verk sem gera borgina að risavöxnu listasafni. Róm er líka borg hinna glæsilegu gosbrunna og er Trevíbrunnurinn líklega þekktastur eftir að Fellini notaði hann í atriði í mynd sinni Hið ljúfa líf, La Dolce Vita. 

Tískan

Róm er líka ein af háborgum tískunnar og engir eru Ítölum fremri þegar kemur að hönnun og tísku. Það er gaman að versla í Róm, hvort sem er í verslunum heimsfrægra hönnuða, í freistandi sérverslunum við Spænsku tröppurnar eða á hinum líflega flóamarkaði, Porta Portese. 

Kvöldin í Róm

Kvöldin í Róm eru seiðmögnuð og eftir dýrlegan málsverð að hætti Rómverja, sem enn velja hráefnið af sömu kostgæfni og keisararnir, er lagt út í nóttina og hið ljúfa líf tekur við.

 

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Innrituð taska 23 kg
Handfarangurstaska 10 kg
Vildarpunktasöfnun

Gisting með morgunverði

Morgunverður innifalinn

Róm gönguferð

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Akstur til og frá flugvelli

Akstur frá flugvelli á hótel við komu
Akstur frá hóteli á flugvöll við brottför

Gististaðir

fráISK 179.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu