Selva er líflegt fjallaþorp í hjarta Val Gardena dals Dólómítanna.
Flogið er með áætlunarflugi til og frá Verona. Akstur til og frá flugvelli er í boði gegn aukagjaldi fyrir farþega með flug og gistingu hjá IcelandairVITA.
Athugið að flutningur á skíðabúnaði er ekki innifalinn í verði og þarf að bæta honum við gegn aukagjaldi fyrir þau sem þess óska. Hægt er að bæta við búnaði, annaðhvort við bókun eða síðar. Þetta fyrirkomulag veitir aukinn sveigjanleika við bókun.
Veturinn 2025-2026
Fararstjóri:
Fyrir brottfarir 20.desember, 27.desember og 3.janúar verður ekki fararstjóri á vegum Icelandair VITA.
Frá og með 10.janúar - 28.febrúar 2026 verður fararstjóri í Selva á vegum Icelandair VITA.
Val Gardena er kunnuglegt svæði meðal Íslendinga, enda einn allra vinsælasti áfangastaður skíðaáhugafólks til margra ára. Selva er þekktasti skíðabærinn í dalnum, enda stendur bærinn í 1500 metra hæð og svæðið er stærsta samtengda skíðasvæði í Evrópu. Icelandair VITA er með samninga við mjög góð hótel sem henta einstaklingum, fjölskyldum eða hópum af öllum stærðum og gerðum.
Segja má að Selva sameini helstu einkennin úr menningu, hefðum og gildum Ítalíu og Austurríkis, en svæðið hefur verið nátengt Austurríki frá því í fyrri heimsstyrjöldinni. Flestir íbúar Selva eru jafnvígir á ítölsku og þýsku en þó tala þeir einnig sitt eigið tungumál, ladínó eða „retórómanska" eins og hún er stunduð kölluð, sem á stóran þátt í að skapa bænum sinn eigin einstaka sjarma.
Útsýnið og aðstaðan í Selva er óviðjafnanleg. Töfrandi umhverfið er víst til að láta engan ósnortinn og hafa gestir og gangandi óteljandi möguleika til hverskyns iðkunar skíðaíþrótta. Þorpið sjálft liggur í um 1.500 metra hæð yfir sjávarmáli og telur skíðasvæðið í heild sinni um 175 kílómetra af skíðabrautum. Hvorki fleiri né færri en 81 skíðalyfta sér um að flytja fólk á milli fjölbreyttra og ólíkra skíðabrauta og ættu því allir að geta fundið brekkur sem henta sinni getu. Að auki er boðið upp á skíðakennslu á svæðinu fyrir alla aldurshópa.
Miðbærinn í Selva lifnar við á kvöldin, þegar gestir á svæðinu taka að flykkjast á veitingastaði bæjarins. Matseldin er undir áhrifum frá ítölskum og austurrískum matarvenjum og úr verður skemmtileg blanda sem flestum líkar ákaflega vel. Skemmtistaðir, barir og krár eru á hverju horni og er óhætt að fullyrða að engum muni leiðast í miðbænum. Eins og víða annarsstaðar í nálægum fjallahéruðum er tréskurðarlist í hávegum höfð í Selva og í miðbænum er að finna mikinn fjölda verslana sem selja útskurðarverk.