16.– 23. september 2026
Fararstjóri: Kristinn R. Ólafsson
Komdu með í einstaka ferð til Sikileyjar þar sem ævaforn saga, litrík menning, gómsætur matur, ljúffeng vín og falleg náttúra mætast. Sagan og menningin er svo djúp að mann hreinlega sundlar: Grísk hof og leikhús, rómverskar villur. Já, Sikiley er Miðjarðarhafið í hnotskurn, og engin smáeyja: tæplega 26 þúsund ferkílómetrar. Þar hafa fjölmargar þjóðir komið við sögu í tímans rás: Síkalar og Síkúlar, Grikkir, Fönikíumenn, Karþagómenn, Rómverjar, Arabar, Normannar, Frakkar, Aragonsmenn, Habsborgararnir spænsku , jafnvel Austurríkismenn .
Í þessari ferð heimsækjum við nokkra áhugaverðustu staði eyjarinnar, allt frá líflegri höfuðborginni Palermo til hinna stórbrotnu grísku hofa við Agrigento. Síðustu dagana dveljum við á Catania-svæðinu á austanverðri eynni þar sem hin mikilfenglega Etna trónir yfir öllu með sína ríflega 3.300 metra: hæsta virka eldfjall Evrópu. Frá Catania förum við í dagsferðir: Einn daginn til Siracusa þar sem við skoðum m.a. forngríska útileikhúsið og göngum um Ortigia-eyju og annan dag til hins fagra og vinsæla bæjar Taormina.
Innifalið í ferðinni- Flug og innritaður farangur
- Gisting með morgunverði
- Rútuferðir
- Skoðunarferðir samkv. ferðalýsingu
- Fæði: Morgunverður alla daga, 1 hádegisverður og 3 kvöldverðir, sjá nánar undir ferðalýsingu.
- Leiðsögn á helstu stöðum
- Aðgangur að eftirtöldum stöðum;
- Normannakirkjan í Monreale (Cattedrale di Monreale)
- Hallarkapellan í Palermo (Cappella Palatina)
- Hofdalurinn (Valle dei Templi)
- Rómverska villan í Casale (Villa Romana del Casale)
- Fornleifagarðurinn í Siracusa (Parco Archeologico di Siracusa)
- Grísk-rómverska leikhúsið í Taormina (Teatro Antico di Taormina)
- Íslensk fararstjórn
Frábært tækifæri til að kynnast einni fallegustu eyju Miðjarðarhafsins í góðum félagsskap.