Framkvæmdastjórn Icelandair
Framkvæmdastjórn Icelandair samanstendur af átta meðlimum sem hafa umsjón með stefnumótun og rekstri fyrirtækisins.
Framkvæmdastjórn Icelandair samanstendur af átta meðlimum sem hafa umsjón með stefnumótun og rekstri fyrirtækisins.
Bogi Nils hóf feril sinn hjá Icelandair Group í október 2008. Hann var framkvæmdarstjóri fjármála hjá Askar Capital frá janúar 2007 þar til hann hóf störf hjá Icelandair Group. Hann var framkvæmdarstjóri fjármála hjá Icelandic Group frá 2004-2006. Bogi Nils starfaði sem endurskoðandi og meðeigandi hjá KPMG á Íslandi á árunum 1993-2004. Bogi Nils er með Cand Oecon gráðu í viðskiptum frá Háskóla Íslands og fékk réttindi sem löggiltur endurskoðandi árið 1998.
Bogi Nils Bogason hefur tímabundið tekið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs í september 2025.
Arnar Már hefur yfirgripsmikla reynslu af flugrekstri. Hann var einn af stofnendum Play árið 2019 og gegndi starfi forstjóra fyrstu árin í rekstri félagsins. Á árunum 2021 til 2024 starfaði hann sem rekstrarstjóri og sinnti jafnframt tímabundið starfi aðstoðarforstjóra, auk þess að hafa verið þjálfunarflugstjóri frá árinu 2019. Á árunum 2013 til 2019 starfaði Arnar Már hjá WOW air þar sem hann gegndi m.a. störfum rekstrarstjóra, flugrekstrarstjóra, yfirflugstjóra og þjálfunarflugstjóra. Áður hafði hann starfað sem flugmaður og flugstjóri hjá Ryanair.
Árni hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Lofteiða Icelandic síðan í janúar 2018 eftir að hafa verið fjármálastjóri fyrirtækisins frá árinu 2002. Áður starfaði hann sem fjármálastjóri tæknifyrirtækjanna ANZA og Álits. Hann er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Einar Már Guðmundsson hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Icelandair Cargo frá september 2023. Einar Már hóf störf hjá Icelandair árið 2015 sem forstöðumaður á tæknisviði félagsins. Einar starfaði áður sem innkaupastjóri hjá Rio Tinto Alcan (ISAL) í þrjú ár og þar á undan sem rekstrarstjóri hjá Skeljungi. Einar er með MBA gráðu frá Copenhagen Business School og BS gráðu í sjávarútvegsfræði frá Háskólanum á Akureyri.
Elísabet starfað áður við mannauðsmál hjá Íslandsbanka, allt frá árinu 2007, og síðustu fimm ár sín þar sem starfsþróunarstjóri. Hjá Íslandsbanka hafði hún m.a. yfirumsjón með allri fræðslu og þjálfun starfsmanna, stjórnendaþjálfun, markþjálfun og frammistöðustjórnun. Á árunum 2000-2007 starfaði hún hjá Capacent Gallup við rannsóknir og ráðgjöf. Elísabet lauk BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA gráðu í Mannauðsstjórnun frá EADA Business School í Barcelona árið 2007.
Ívar var ráðinn í starf framkvæmdastjóra fjármálasviðs í maí 2021. Hann hefur starfað hjá Icelandair frá árinu 2010, síðast sem fjármálastjóri, þar áður sem framkvæmdastjóri flugflota og leiðarkerfis. Hann var forstöðumaður hjá Promens á árunum 2006-2008 og verkefnastjóri í upplýsingatækni og rekstrarstýringu hjá Icelandair frá 2000 til 2005. Ívar er með M.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu í fjármálum frá University of North Carolina, Chapel Hill.
Reynsla Leifs af flugrekstri spannar nærri 30 ár, bæði á Íslandi og erlendis. Hann hefur gegnt starfi aðstoðarforstjóra tæknisviðs og viðhalds hjá Icelandair frá árinu 2021, eftir að hafa stýrt tæknilegri starfsemi og viðhaldi hjá Loftleiðum Icelandic, sem sér um leiguflug Icelandair, og hjá Air Iceland Connect áður en innanlandsflug félagsins var sameinað alþjóðafluginu. Á árunum 2014 til 2017 starfaði Leifur sem aðstoðarforstjóri flugflota hjá Avion Express í Litháen og sem sviðsstjóri á rekstrarsviði SmartLynx Airlines í Lettlandi á árunum 2009 til 2014. Leifur hóf feril sinn í fluggeiranum árið 1998 sem flugvirki hjá Air Iceland, þar sem hann starfaði í yfir tíu ár við ýmis störf á tæknisviði.
Rakel Óttarsdóttir hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar hjá Icelandair frá mars 2022. Í júní 2024 tók hún jafnframt við starfi framkvæmdastjóra umbreytinga. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Alvotech og var yfirmaður upplýsingatæknisviðs og alþjóðlegrar verkefnastofu Össurar (CIO and VP of Global Program Office). Fyrir þann tíma, starfaði hún í um 14 ár hjá Arion banka, þar sem hún var meðal annars framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssvið frá 2011 og framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs frá 2016 þar sem hún leiddi mótun og framkvæmd stafrænnar stefnu bankans. Rakel er með MBA gráðu frá Duke University í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.
Tómas Ingason var skipaður framkvæmdastjóri tekju-, þjónustu- og markaðssviðs í ágúst 2023. Áður var Tómas framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu, frá nóvember 2021. Hann var framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Icelandair frá febrúar 2019 til 2021, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air á árinu 2018 og forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka á árunum 2016 til 2018. Hann starfaði einnig hjá WOW air á árinu 2014 sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs. Fyrir þann tíma starfaði hann sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn og hjá Icelandair þar sem hann var forstöðumaður tekjustýringar og verðlagningar um árabil. Tómas er með MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston, MSc. gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur og BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.