Við erum þér innan handar með allt sem þú þarft til að auðvelda ferðalagið, hvort sem er í innanlands- eða milllilandaflugi.
Ef þú þarft á aðstoð að halda fyrir flug, meðan á flugi stendur og/eða eftir flug, biðjum við þig að láta okkur vita áður en ferðalagið hefst.
Hægt er að biðja um aðstoð á þrjá vegu:
Í kjölfarið förum við í gegnum allar nauðsynlegar ráðstafanir með þér og skoðum hvernig við getum verið þér innan handar.
Athugaðu að farþegar sem eru blindir eða heyrnalausir, eða geta ekki ferðast án aðstoðar, þurfa að hafa aðstoðarfólk með í för.
Við bjóðum öllum blindum og heyrnarlausum farþegum forgangsinnritun og forgang um borð í vél.
Vinsamlega láttu okkur vita með fyrirvara hvaða aðstoð þú óskar eftir á meðan á flugi stendur.
Þú getur einnig fundið sérstakar upplýsingar um flugvallaþjónustu á vef flugvallarins sem þú flýgur til.
Meðan á fluginu stendur geta flugliðar okkar aðstoðað þig með:
Flugliðar okkar geta því miður ekki aðstoðað við eftirfarandi:
Sérstakur þjónustuaðili eða aðstoðarmanneskja þarf að vera þér innan handar á meðan á ferðinni stendur, ef þú þarft aðstoð við einhver ofangreindra atriða.
Athugið:
Hvorki blindum né heyrnarlausum farþegum verður úthlutað sæti við neyðarútgang.
Það er að minnsta kosti eitt salerni um borð í hverri vél með slám fyrir betra aðgengi. Þú getur beðið flugliðana okkar um borð að vísa þér í rétta átt.
Við bjóðum einnig upp á þjónustu sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins, hvort sem um sjón- eða heyrnarskerðingu er að ræða.
Allir blindir farþegar fá vissa grunnþjónustu sem ekki þarf að óska eftir sérstaklega, t.d. sérstaka kynningu á öryggisatriðum með áþreifanlegri sýnikennslu.
Heyrnarlausir farþegar fá textaða lýsingu á öryggisatriðum og öll afþreying um borð er sömuleiðis textuð.
Athugaðu að flugliðar gætu nýtt sér hljóðkerfið í afþreyingarkerfinu um borð fyrir flugtilkynningar.
Um leið og vélin lendir veitir starfsfólk á komuflugvelli þér aðstoð.
Á Keflavíkurflugvelli er þessi þjónusta í boði Isavia.
Starfsfólk frá Isavia fylgir þér í gegnum flugvöllinn, allt frá vegabréfsskoðun, að töskufæribandi og gegnum tollskoðun.