Meira fótarými | Icelandair
Pingdom Check

Meira fótarými

Viltu hafa það huggulegt á ferðalaginu? Náðu þér í sæti með Meira fótarými og teygðu úr þér þegar þér sýnist svo.

Teygðu úr fótunum!

Icelandair býður nú farþegum sínum þann kost að geta látið fara virkilega vel um í sig í rúmgóðum sætum með Meira fótarými.

Bilið á milli sæta í vélum Icelandair er meira en tíðkast hjá öðrum flugfélögum (að lágmarki 79 cm og allt að 81 cm) en með Meira fótarými gefst þér kostur að teygja enn betur úr fótunum.

Stundum eru það litlu hlutirnir sem skipta sköpum. Ef þægindi og rými er það sem þú ert helst á höttunum eftir, þá getur þú valið sæti með að lágmarki 86 cm sætabili, eða yfir 102 cm, í einhverjum tilvikum.

Vinsamlegast athugið að sæti með Meira fótarými eru ekki í boði í þeim flugvélum okkar sem notaðar eru í innanlandsflugi og flugi til Grænlands.

Þægindi og rými

Þrjár tegundir sæta með Meira fótarými eru í boði, fremst í farrýminu og við neyðarútganga.

  • Fremst í farrýminu eru hallanleg sæti með 86 cm bili sín á milli og aðgengi að rafmagnsinnstungu.
  • Hallanlegt sæti við neyðarútgang hefur upp á að minnsta kosti 96 cm sætabil að bjóða.
  • Sæti við neyðarútgang með takmörkuðum möguleika á að halla hefur að minnsta kosti 91 cm sætabil að bjóða, en ekki hægt að halla þeim mikið, eða yfirhöfuð.

Athugið að ákveðnar reglur gilda um farþega sem sitja í sætaröðum við neyðarútgang: þeir þurfa að hafa náð 12 ára aldri og hafa vilja, líkamlega og andlega burði til að aðstoða áhöfnin í neyð.

Farþegum sem ferðast með ungbarn er ekki heimilt að sitja í sætaröð við neyðarútgang, eða í sætaröðum fyrir framan eða aftan neyðarútgang.

Þú getur keypt þér Meira fótarými á eftirfarandi stöðum

  • Í bókunarferlinu
  • Þegar bókað er hjá ferðaskrifstofu og ferðaþjónustuaðila
  • Í Ferðin mín
  • Við innritun á netinu
  • Við innritunarborð á flugvelli
  • Um borð með Vildarpunktum
  • Um borð með kreditkorti

Athugið:

Sæti með Meira fótarými fást ekki endurgreidd og eru óbreytanleg.

Við eftirfarandi aðstæður er endurgreiðsla þó í boði:

  1. Ef fluginu er aflýst.
  2. Ef flugvélaskipti eiga sér stað og við getum ekki boðið sambærilegt sæti.
  3. Ef þú kaupir þér uppfærslu á Saga Premium.

Farþegar sem keypt hafa sæti við neyðarútgang en uppfylla ekki skilyrði þess að sitja þar verða færðir án möguleika á endurgreiðslu.

Vinsamlega athugið að kaup á sæti með auknu fótarými tryggir ekki eða gefur skilyrðislausan rétt á ákveðnu sæti (til dæmis 7A eða 7B) né heldur tryggja kaupin sæti við glugga, í miðju eða við gang, þó við gerum okkar besta til að koma til móts við óskir í þá átt. Kaupin fela aðeins í sér sæti með meira fótarými í ákveðnum verðflokki (sjá verð hér að ofan).

Ekki er hægt að færa sæti með Meira fótarými á milli farþega. Hafi farþegi keypt sæti fyrirfram en hættir við ferðina, tapast sætið án möguleika á endurgreiðslu.

Nánari upplýsingar er að finna í skilmálum fyrir Meira fótarými.