Vertu í sambandi allt flugið, frá því að þú sest í sætið þar til flugvélin lendir!
Öllum farþegum sem ferðast í vélum okkar af gerðinni Airbus 321 og Boeing 757, 767 og 737 stendur nú til boða þráðlaust net, frá því að stigið er um borð þar til komið er á áfangastað.
Vinsamlegast athugið að þráðlaust net (Wi-Fi) er ekki í boði í þeim flugvélum okkar sem notaðar eru í innanlandsflugi og flugi til Grænlands.
Þegar þú ert komin/n inn í Wi-Fi kerfið, býðst þér að borga með Vildarpunktum.
Ísland - Evrópa | Ísland - Norður-Ameríka | |
---|---|---|
Airbus A321LR, Boeing 737 MAX - til að vafra á netinu, skoða tölvupóst, streyma efni | €12 | €24 |
Boeing 757 / 767 – til að vafra á netinu og skoða tölvupóst | €6 | €12 |
Vinsamlegast athugið að þráðlaust net (Wi-Fi) er ekki í boði í þeim flugvélum okkar sem notaðar eru í innanlandsflugi og flugi til Grænlands.
Þráðlausa nettengingin er breytileg milli flugvéla. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um hvernig skal tengjast þráðlausa netinu og um eiginleika tengingarinnar sem býðst í vélunum.