10 Vildarbarnafjölskyldur á leið í draumaferðina
10 Vildarbarnafjölskyldur á leið í draumaferðina
Í dag, sumardaginn fyrsta, er tíu börnum og fjölskyldum þeirra afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair.
Markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Alls hafa um 270 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. í dag er úthlutað styrkjum úr sjóðnum í 14. sinn.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með eftirtöldum hætti: Með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflarvíkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa margar fjölskyldnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.
Nemendur og stjórnendur Hagaskóla eru viðstödd úthlutunina í dag, vegna söfnunarátaksins Gott Mál sem þau stóðu fyrir þann 24. mars síðastliðinn, en frá söfnun þeirra runnu 508.000 kr. til Vildarbarna.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en Sigurður Helgason er formaður stjórnar hans.
Afhendingin fór fram á Hótel Loftleiðum og hófst klukkan 11.00.