180 fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair í dag
33 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals um 180 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í dag.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og Sigurður formaður stjórnarinnar.
Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.
Alls hafa 431 fjölskylda notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 21. úthlutun sjóðsins og 10. starfsár hans.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa um 2150 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.
Á efri myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutun í dag. Á neðri myndinni eru Sigurður og Peggy Helgason með Vigdísi Finnbogadóttur, verndara Vildarbarna og Dóru Elínu Atladóttur, forstöðumaður Vildarbarna.