Pingdom Check
04/24/2014 | 12:00 AM

25 fjölskyldur, 150 manns, fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair í dag

25 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals um 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í dag, sumardaginn fyrsta.

Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún situr í stjórn Vildarbarna Icelandair og Sigurður formaður stjórnarinnar. Vigdís Finnbogadóttir er verndari sjóðsins.

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á.

Alls hafa 456 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 22. úthlutun sjóðsins og 11. starfsár hans.

Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofum Icelandair. Einnig koma til frjáls framlög og viðburðir eins og stórmeistaramót Vildarbarna í skák.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa um 2300 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.

Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutun í dag.