Pingdom Check
02/04/2015 | 12:00 AM

Aldrei fleiri á Icelandair Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni

Ferðakaupstefnan Icelandair Mid-Atlantic sem hefst annað kvöld er stærsta ferðakaupstefna sem haldin er á Íslandi. Hún er nú haldin í 23. skipti og hefur aldrei verið fjölmennari.

Kaupstefnan er haldin á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands, og hefur alla tíð byggst á leiðarkerfi Icelandair. Hún er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni. Hún stendur nú yfir dagana 5. - 8.febrúar og fer fram í Laugardalshöllinni.

“Áhuginn hefur aldrei verið meiri. Það komast færri að en vilja og það er ánægjulegt merki um kraftinn í atvinnugreininni", segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

Fulltrúar á Icelandair Mid-Atlantic eru nú tæplega 800 og af þeim koma um 460 frá 20 löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku og einnig frá fjarlægari mörkuðum. Alls eru 252 sýningarbásar settir upp í Laugardalshöllinni og í þeim munu fara fram um sex þúsund bókaðir fundir milli viðskiptaaðila. Á annað hundrað íslensk ferðaþjónustufyrirtæki víðs vegar að af landinu eru meðal þátttakenda og nýta þetta tækifæri til að kynna vöru sína og þjónustu.

Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt opinber ferðamálaráð ýmissa þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku og Evrópu.

 “Ferðaþjónustan er orðin undirstöðuatvinnugrein á Íslandi og mikilvægt fyrir okkur að hafa frumkvæði að því að skapa ný viðskiptatækifæri. Sá aukni áhugi sem við finnum erlendis frá er þess vegna mjög ánægjulegur. Icelandair Mid-Atlantic er einn helsti vettvangur fyrir ferðaþjónustuna að mynda tengsl við samstarfsaðila og selja og kynna sína vöru beint fyrir kaupendum. En einnig eru hér evrópsk fyrirtæki að kaupa ferðaþjónustu frá Norður-Ameríku sem þeir síðan selja neytendum á heimamarkaði, og öfugt. Ísland er miðpunkturinn í öllu þessu starfi, líkt og í leiðarkerfi okkar,”segir Helgi Már.

Icelandair Mid-Atlantic verður sett í Hilton Reykjavík Nordica annað kvöld, fimmtudagskvöld 5. febrúar klukkan 19.00. Fulltrúar fjölmiðla eru velkomnir. Einnig er gott tækifæri fyrir fjölmiðla að kynna sér kaupstefnuna á föstudag kl 14.00. Þá mun ráðherra ferðamála og ýmsir helstu forystumenn ferðaþjónustunnar vera á staðnum í um klukkustund, kynna sér efni hennar og ræða við þátttakendur.