Pingdom Check
07/07/2023 | 11:00 AM

Bræðslan Borgarfirði eystra

Bræðslan er öðruvísi tónlistarhátíð. Einstök staðsetning hennar við Borgarfjörð eystri laðar að tónlistarunnendur sem og þau sem vilja upplifa ólýsanlegar sumarnætur á Borgarfirði eystra, þegar rökkur haustsins byrjar að láta á sér kræla og sólsetrið skartar sínu fegursta. Í ár eru aðaltónleikar Bræðslunnar haldnir 29. júlí.

Fyrsta Bræðsla fór fram árið 2005, þegar söngkonan og lagahöfundurinn Emilíana Torrini hélt tónleika í gömlu síldarbræðslunni á Borgarfirði. Tónleikarnir og óvenjuleg umgjörð þeirra heillaði tónleikagesti upp úr skónum, og síðan þá hafa tónleikar í bræðslunni verið fastur liður í viðburðardagskrá sumarsins.

Fólk á göngu við strandlengju Borgarfjarðar Eystra.

Fjölskylduvæn náttúruparadís

Segja má að Bræðslan sé fjölskylduhátíð – skipulögð af bræðrunum Magna og Heiðari Ásgeirssonum. Á hverju ári leggur fjölbreyttur hópur fólks leið sína á Bræðsluna sem spannar heilu fjölskyldurnar, unga sem aldna, sem og fólk ættað af svæðinu.

Viðburðurinn sameinar tónleikaupplifun og margrómaða fegurð Borgarfjarðar eystri sem skilur engan eftir ósnortinn á löngum sumarkvöldum. Andrúmsloftið er fjölskylduvænt og Borgfirðingar höfðingjar heim að sækja. Allt þetta setur tóninn fyrir þá sérstöku upplifun sem Bræðslan er og laðar gesti að ár eftir ár.

Litríkur þvottur út á snúru, í bakgrunni tónleikagestir og fjöll.

Eftirsótt tónlistarveisla

Aðalviðburðurinn á Bræðslunni fer yfirleitt fram á næstsíðasta eða síðasta laugardeginum í júlí. Undanfarin ár hefur hátíðin breitt úr sér með mörgum off-venue tónleikum og öðrum viðburðum sem haldnir eru í vikunni á undan. Hátíðin er eftirsótt meðal áheyrenda sem og tónlistarfólks sem keppist við að komast að á hverju ári.

Margir þekktir listamenn hafa komið fram á Bræðslunni – bæði alþjóðlegir og íslenskir – þar má nefna Damien Rice, Belle and Sebastian, Eivör Pálsdóttir, Of Monsters and Men, Megas, Hjálma og Bríeti.

Glaðlegir tónleikagestir sveipaðir bláu ljósi.

Bræðslan – hátíð á heimsmælikvarða

Hefurðu ekki farið á Bræðsluna? Miðar fara í sölu við upphaf hvers árs og eru fljótir að fara. Það hefur þó ekki stoppað ferðaglaða tónlistarunnendur sem mæta einfaldlega á svæðið með enga miða en vilja ólmir upplifa þá einstöku stemningu sem fylgir Bræðslunni – enda hátíð á heimsmælikvarða.

Við bjóðum upp á flug daglega til Egilsstaða sem færir þér Austurland nær. Veðursældin fyrir austan hefur leikið við landann síðustu ár og því tilvalið að kynna sér það sem fjórðungurinn hefur upp á að bjóða.

Loftmynd af þéttskipuðu tjaldsvæði við tónleikastaðinn Bræðsluna, í bakgrunni bærinn, bryggja og sjórinn.

Kíktu á stemninguna sem var á Bræðslunni árið 2021, en við tókum viðtöl við tónlistarfólk hátíðarinnar og upplifun þeirra af Bræðslunni sem og Borgarfirði: