02/08/2013 | 12:00 AM
Flugi Icelandair til Boston og New York í dag aflýst vegna veðurs á austurströnd Bandaríkjanna
Jafnframt hefur flugi frá þessum borgum til Íslands í kvöld (FI630 og FI614) verið aflýst. Búist er við að samgöngur verði aftur komnar í gang síðdegis á morgun og að flug verði þá samkvæmt áætlun, en farþegar eru beðnir að fylgjast með brottfarartímum.