Fyrsta flug Icelandair til Aberdeen í morgun | Icelandair
Pingdom Check
03/09/2016 | 12:00 AM

Fyrsta flug Icelandair til Aberdeen í morgun

Icelandair hóf í morgun áætlunarflug til Aberdeen í Skotlandi. Á flugvellinum í Aberdeen var tekið á móti fyrsta fluginu, sem lenti upp úr klukkan 10 í morgun, með viðhöfn.

Aberdeen er á norðausturströnd Skotlands, þriðja stærsta borg landsins á eftir Glasgow og Edinborg, með um 300 þúsund íbúa. Hún er forn mennta- og menningarborg og fjölmargir heimsfrægir golfvellir eru í og við borgina. Hún er sjötti áfangastaðurinn í Bretlandi sem Icelandair þjónustar.

Flugfélag Íslands annast flugið fyrir Icelandair á Bombardier Q400 flugvél sem nýlega var tekin í notkun og tekur 72 farþega. Flogið er til og frá Keflavíkurflugvelli og með sömu tengimöguleikum fyrir farþega yfir Norður-Atlantshafið og í öðru flugi í leiðakerfi Icelandair á morgnana og síðdegis. Flugið til Aberdeen í morgun tók 2:20 klukkustundir.

„Stefna okkar er að auka flugsamgöngur með því að vinna með alþjóðaflugfélögum og við vonumst til þess að þetta flug fjölgi gestum, ekki bara frá Íslandi, heldur frá helstu mörkuðum okkar í Norður-Ameríku“, segir Mike Cantlay, stjórnarformaður Visit Scotland.

„Þetta flug er liður í því að þétta og styrkja leiðakerfi Icelandair. Við sjáum ákveðin tækifæri í því að nýta smærri flugvél eins og Q400 til að fara inn á Aberdeen markaðinn, tengja hann í leiðakerfið og byggja hann upp til framtíðar“, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.

Flogið er fjórum sinnum í viku, á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum. Aberdeen er 27 áfangastaður Icelandair í Evrópu, en auk þess flýgur félagið til 16 áfangastaða í Norður-Ameríku.

Á myndinni eru sem tekin var á Aberdeenflugvelli í morgun eru Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Andrés Jónsson, svæðisstjóri Icelandair í Bretlandi, Addý Ólafsdóttir, viðburðastjóri Icelandair, Carol Benzie, flugvallarstjóri Aberdeenflugvallar, Julie Brownley,sekkjapípuleikari og Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.