Pingdom Check
02/03/2015 | 12:00 AM

Hekla Aurora, norðurljósavél Icelandair í útsýnisflugi yfir Reykjavík síðdegis í dag

Boeing 757 farþegaþotu Icelandair, sem máluð hefur verið í norðurljósalitum, verður flogið útsýnisflugi yfir Reykjavík laust eftir kl. 17:00 í dag.

Þetta útsýnisflug verður meðal annars nýtt til þess að ná góðum myndum af flugvélinni á flugi yfir Reykjavík til nota í kynningarskyni á alþjóðamarkaði. Um borð verða um 20 fulltrúar fjölmiðla frá Bandaríkjunum og Evrópulöndum en einnig stór hópur fyrrverandi starfsmanna Icelandair sem boðið var til útsýnisflugsins. Hekla Aurora er ekki aðeins prýdd norðurljósunum að utan, heldur hefur norðurljósalýsingu einnig verið komið fyrir í farrýmum hennar. Engin önnur farþegaþota í heiminum hefur áður verið skreytt á þennan hátt og því er flugupplifun með vélinni sannarlega einstök.

Hekla Aurora hefur vakið mikla athygli á undanförnum vikum í þeim borgum sem henni hefur verið flogið til í leiðakerfi Icelandair og verið vinsælt myndefni ljósmyndara og kvikmyndatökumanna.