Icelandair fellir niður 11 flug á morgun vegna verkfallsaðgerða flugmanna | Icelandair
Pingdom Check
05/10/2014 | 12:00 AM

Icelandair fellir niður 11 flug á morgun vegna verkfallsaðgerða flugmanna

Icelandair hefur fellt niður 11 flug  félagsins á morgun, sunnudag 11. maí, vegna verkfallsaðgerða flugmanna.  Icelandair hafði áður fellt niður 30 flug í gær vegna þeirra.  Skæruaðgerðir flugmanna hafa valdið verulegri seinkun á flugi Icelandair í dag og vegna þeirra er ljóst að fella verður niður 11 flug félagsins á morgun. Það eru flug til og frá Glasgow (FI430/FI431),  Kaupmannahöfn (FI204/FI205) Helsinki (FI342/FI343) Amsterdam (FI502/503), London Heathrow (FI450/FI451) og Bergen/Stavanger (FI338).

Vegna aðgerða flugmanna má búast við frekari röskun á flugi og að einstök flug þurfi að fella niður með skömmum fyrirvara.

Icelandair mun eftir fremsta megni reyna að leysa úr þeim vanda sem niðurfelling flugsins skapar viðskiptavinum m.a. með því að flytja þá yfir á flug annarra flugfélaga eins og hægt er, einnig að færa farþega á önnur flug Icelandair til og frá þessum áfangastöðum ef það er unnt eða breyta farmiðum með öðrum hætti. Þeir sem hætta við ferð sína munu fá endurgreitt. Nánari upplýsingar eru á Icelandair.is.

“Um leið og við biðjum viðskiptavini velvirðingar á þessari röskun þá vil ég koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrir þann skilning og þolinmæði sem þeir sýna við erfiðar aðstæður," segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.