Pingdom Check
11/28/2017 | 12:00 AM

Icelandair flýgur beint á alla leikstaði Íslands á HM í Rússlandi í sumar

Icelandair hefur ákveðið að fljúga að minnsta kosti eitt flug til þeirra þriggja borga í Rússlandi þar sem leikir Íslands í riðlakeppninni fara fram. Ljóst verður 1. desember um hvaða borgir verður að ræða og hverjir leikdagar Íslands verða, en þá verður dregið í riðla keppninnar. Flogið verður frá Íslandi daginn fyrir leik og til baka daginn eftir leik.

„Við fáum mikið af fyrirspurnum um HM og ljóst að fjöldi Íslendinga mun gera sér ferð á keppnina. Eflaust munu margir nýta sér áætlunarflug til borga í Evrópu og taka þaðan flug eða lest á áfangastað, en nú liggur fyrir að Icelandair mun fljúga beint á alla þrjá leiki Íslands í riðlakeppninni“, segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.