Icelandair flýgur til Billund og Gautaborgar næsta sumar | Icelandair
Pingdom Check
08/06/2010 | 12:00 AM

Icelandair flýgur til Billund og Gautaborgar næsta sumar

Icelandair hefur ákveðið að hefja áætlunarflug til Billund í Danmörku og Gautaborgar í Svíþjóð næsta sumar. Flogið verður þrisvar í viku til Billund og tvisvar í viku til Gautaborgar á tímabilinu júní til september. Sala hófst til þessara áfangastaða fyrir nokkru. Unnið hefur verið að undirbúningi þessa flugs um skeið og tengist það auknu flugi Icelandair til New York og Boston, sem kynnt var á dögunum.

Báðir þessir áfangastaðir eru viðskiptavinum og starfsfólki Icelandair að góðu kunnir. Icelandair flaug síðast í áætlunarflugi til Gautaborgar sumarið 2008 og sömuleiðis hefur Icelandair um árabil flogið  leiguflug til Billund í samstarfi við ferðaskrifstofur.

"Með þessu fjölgum við áfangastöðum okkar á Norðurlöndunum úr sjö í níu. Næsta sumar munum við fljúga til Osló, Bergen, Stavanger og Þrándheims í Noregi, til Kaupmannahafnar og Billund í Danmörku, til Stokkhólms og Gautaborgar í Svíþjóð og Helsinki í Finnlandi.  Við sjáum fram á vöxt á næsta ári og bjóðum viðskiptavinum á leið til og frá Skandinavíu fleiri valkosti með þessum nýju áfangastöðum", segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair.