Pingdom Check
02/16/2016 | 12:00 AM

Icelandair fyrst evrópskra flugfélaga með þráðlaust Internet frá flugvelli til flugvallar

Farþegar Icelandair geta frá og með deginum í dag tengst þráðlausu Interneti um leið og stigið er um borð í flugvélar félagsins og er tengingin virk allt þar til lagt er að hliði við flugstöð á áfangastað. Icelandair, í samstarfi við Global Eagle Entertainment, er fyrsta flugfélagið í Evrópu sem býður þessa þjónustu. Áður var fyrst hægt að tengjast þegar flugvél hafði náð 10 þúsund feta hæð, og slökkt var á internettengingunni fyrir lendingu.

Þráðlaust Internet er í boði á öllum flugleiðum Icelandair ásamt afþreyingarkerfi í sætisbaki. Farþegar á almennu farrými greiða fyrir netaðganginn, en á Saga Class er þjónustan innifalinn.

„Þessa nýjung er liður í þeirri stefnu okkar að gera flugið sem ánægjulegast fyrir farþega okkar. Að fara á netið er hluti af daglegri tilveru flestra, hvort sem um er að ræða persónulega notkun eða vinnutengda, og við viljum vera í fararbroddi við að gera fólki það kleift þegar ferðast er,“ segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.

(Meðfylgjandi mynd er tekin um borð í vél Icelandair)