Pingdom Check
07/06/2021 | 11:00 AM

Icelandair Group styrkir Landsbjörg og kynnir nýja árlega viðurkenningu

Icelandair Group og Slysavarnafélagið Landsbjörg skrifuðu í dag undir áframhaldandi samstarfssamning til næstu fimm ára en félagið hefur frá árinu 2014 verið einn af aðalstyrktaraðilum Landsbjargar. Samningurinn var undirritaður fyrr í dag við einn vinsælasta ferðamannastað landsins um þessar mundir, gosstöðvarnar í Geldingadölum. Við sama tilefni var tilkynnt um nýja viðurkenningu, Verndarvænginn, sem Icelandair mun veita árlega fyrir eftirtektarvert starf björgunarsveitar. Fyrsti Verndarvængurinn var veittur björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík fyrir öflugt og mikilvægt starf við gosstöðvarnar.

Samstarfssamningur Icelandair og Slysavarnafélagsins Landsbjargar kveður á um beinan fjárhagslegan styrk auk sérstakra styrkja til flugferða innanlands og milli landa. Einnig verður lögð áhersla á samstarf Icelandair og Landsbjargar hvað varðar forvarnir og upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna, öryggisþjálfun og gerð viðbragðsáætlana. Horft verður til þess að efla vefinn Safetravel.is enn frekar en vefurinn er öflug og góð upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn. Auk þess mun Icelandair koma upplýsingum um vefinn áfram til flugfarþega um sínar dreifileiðir. Undanfarin ár hafa Landsbjörg og Icelandair verið í virku samstarfi varðandi öryggisþjálfun, gerð viðbragðsáætlana og viðbrögð við flugatvikum. Þetta samstarf verður eflt enn frekar á næstu árum.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:

„Slysavarnafélagið Landsbjörg vinnur mjög mikilvægt starf og gegnir lykilhlutverki innan almannavarnarkerfis okkar Íslendinga. Verkefnum björgunarsveita um allt land hefur fjölgað mikið undanfarinn áratug eftir því sem ferðaþjónusta hér á landi hefur eflst og við teljum mikilvægt að við hjá Icelandair, sem flytjum meirihluta ferðamanna til Íslands, leggjum okkar lóð á vogarskálarnar til að stuðla að öryggi fólks sem ferðast um landið. Það er einnig ánægjulegt að tilkynna um frekari útvíkkun á samstarfi okkar með nýrri viðurkenningu, Verndarvænginn, sem fellur að þessu sinni í skaut Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar fyrir mikilvægt starf við að tryggja öryggi ferðamanna við gosstöðvarnar.“

Kristján Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar:

 „Stuðningur Icelandair er okkur ómetanlegur í því viðamikla starfi sem Slysavarnafélagið Landsbjörg sinnir. Við höfum lagt mikla áherslu á öryggismál innlendra sem erlendra ferðamanna síðasta áratuginn, meðal annars í gegnum Safetravel verkefnið okkar. Þessi fimm ára samningur gefur okkur því möguleika á að gera enn betur í þeim málaflokki og undirstrikar vilja beggja aðila til þess að vinna áfram sameiginlega að bættu öryggi ferðamanna. Samstarf félagsins og Icelandair hefur verið einstaklega farsælt og skiptir þar mestu máli sá skilningur sem Icelandair hefur sýnt starfsemi okkar og mikilvægi þess fyrir íslenskt samfélag.“