Pingdom Check
01/10/2018 | 12:00 AM

Icelandair tilkynnir flug til Baltimore

Icelandair hefur ákveðið að hefja flug til bandarísku borgarinnar Baltimore  í maí.  Borgin er 22. áfangastaðurinn í Norður-Ameríku sem Icelandair býður upp á í leiðakerfi sínu. Flogið verður fjórum sinnum í viku frá 28. maí fram í miðjan október. Sala farseðla er þegar hafin.

„Með fluginu til Baltimore erum við að auka framboð okkar inn á hið fjölmenna Washington/Baltimore svæði, en við fljúgum nú þegar á Dulles flugvöllinn í Washington. Við lítum á þetta sem eitt markaðssvæði, þarna búa um 10 milljónir íbúa og höfuðborgin er að sjálfsögðu mikil miðstöð stjórnsýslu og viðskipta í Bandaríkjunum“, segir Björgólfur Jóhannson, forstjóri Icelandair. Um 70 kílómetrar eru á milli flugvallanna. Þetta er fjórða stórborgarsvæðið sem Icelandair þjónar með flugi á tvo flugvelli. Nú þegar er boðið upp á flug til JFK og Newark flugvallanna í New York, til Heathrow og Gatwick í London og til Charles De Gaulle og Orly flugvallanna í París.   

„Við leggjum nú áherslu á fjölgun áfangastaða í leiðakerfi Icelandair og til viðbótar við Berlín, Dublin, Cleveland og Dallas, sem þegar hafa verið kynntar til leiks, bætum við tveimur nýjum áfangastöðum vestan hafs við í sumar; Baltimore og Kansas City. Þá eru áfangastaðirnir orðnir 22 í Norður-Ameríku en voru 18 í fyrra og Icelandair orðið meðal þeirra evrópsku flugfélaga sem fljúga til flestra áfangastaða í Norður-Ameríku. Jafnframt þessari auknu þjónustu við nýjar drögum við úr tíðni á nokkra aðra áfangastaði þannig að heildarframboð er það sama og áður hefur verið kynnt, en við aukum hagkvæmni leiðakerfisins og styrkjum samkeppnisstöðu félagsins,“ segir Björgólfur Jóhannsson.

Nú í vor mun Icelandair taka í notkun þrjár nýjar 160 sæta Boeing 737 MAX 8 flugvélar og verða alls 33 flugvélar nýttar til farþegaflugsins í sumar, 26 af Boeing 757 gerð og fjórar af Boeing 767-300 gerð auk nýju vélanna.