Pingdom Check
05/12/2017 | 12:00 AM

Nýr Icelandair Saga Lounge opnaður á Keflavíkurflugvelli

Í gærkvöldi opnaði Icelandair nýja og glæsilega setustofu, Saga Lounge, í nýrri byggingu á efstu hæð flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Um er að ræða 1400 fermetra svæði þar sem fer saman falleg norræn hönnun, innblásin af íslenskri náttúru og menningu og frábært útsýni yfir flugstarfsemina á vellinum og alla leið til Snæfellsjökuls.

Nýja setustofan er um tvöfalt stærri en sú eldri, sem var í kjallara flugstöðvarinnar. Sætum og veitingastöðum er fjölgað og þægindi aukin. Icelandair Saga Lounge er einn af fjölsóttari samkomustöðum landsins en gert er ráð fyrir að gestir félagsins þar verði um 120 þúsund á árinu.

Setustofan var hönnuð af Eggert Ketilssyni og Stíg Steinþórssyni, sem höfðu að leiðarljósi  stefnu Icelandair um að bjóða viðskiptavinum endurnærandi íslenska upplifun með lita,- og efnisvali og sérstökum munum eins og afsteypu af þekktum álfasteini.

Á myndinni opna þeir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Keflavíkurflugvelli og Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair nýju setustofuna með formlegum hætti að viðstöddu fjölmenni.