Rúmlega 150 manns á leið í ferð með styrk Vildarbarna
26 börnum og fjölskyldum þeirra, samtals rúmlega 150 manns, var afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair í gær, fyrsta vetrardag. Alls bárust sjóðnum um 300 umsóknir að þessu sinni.
Markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Alls hafa 355 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 19. úthlutun sjóðsins og 10. starfsár hans.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflavíkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair.
Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Að meðaltali eru fimm manns í hverri fjölskyldu og því hafa um 1770 einstaklingar farið í ferð á vegum sjóðsins. Jafnan hafa margar fjölskyldanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland og aðra skemmtigarða þar.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair. Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en Sigurður Helgason er formaður stjórnar hans.
Á myndinni eru styrkþegar ásamt stjórnendum Vildarbarna við úthlutun í gær.