Pingdom Check
12/17/2015 | 12:00 AM

Þrímilljónasti farþegi Icelandair á árinu fær glaðning

Farþegafjöldi Icelandair á þessu ári fór í dag yfir þrjár milljónir. Þrímilljónasti farþeginn reyndist vera Embla Waage, 12 ára, sem fór með foreldrum sínum og tvíburasystrum til Kaupmannahafnar á flugi FI212 síðdegis í dag. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, afhenti henni glaðning við brottfararhliðið; blómvönd og gjafabréf, og öllum farþegum í fluginu var boðið upp léttar veitingar.

Þetta er í fyrsta sinn í langri sögu Icelandair sem farþegafjöldinn í áætlunarflugi fer yfir þrjár milljónir á einu ári. Farþegafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir tvær milljónir árið 2012, en þeir voru um 2,6 milljónir á síðasta ári. Farþegafjöldinn í ár er í samræmi við áætlanir en gert er ráð fyrir að farþegum fjölgi um 450 þúsund á næsta ári og verði í heild um 3,5 milljónir á árinu 2016.

Á myndinni eru Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Embla Waage og foreldrar hennar, Indriði Waage og Þórhildur Ósk Halldórsdóttir og tvíburasysturnar Sigríður María og Brynja Valdís ásamt áhöfninni í fluginu til Kaupmannahafnar í dag.