Þrettán börn fá ferðastyrk Vildarbarna | Icelandair
Pingdom Check
04/18/2011 | 12:00 AM

Þrettán börn fá ferðastyrk Vildarbarna

Laugardaginn 16. apríl, var 13 börnum afhentur ferðastyrkur úr sjóðnum Vildarbörn Icelandair. Um 200 umsóknir bárust sjóðnum að þessu sinni, líkt og jafnan áður.

Markmið sjóðsins Vildarbörn er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum, tækifæri til þess að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á. Alls hafa tæplega 300 fjölskyldur notið stuðnings frá sjóðnum frá stofnun hans. Þetta er 16. úthlutun sjóðsins og 8. starfsár hans.
Sjóðurinn Vildarbörn er fjármagnaður með eftirtöldum hætti: Með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Vildarklúbbi Icelandair sem geta gefið af Vildarpunktum sínum, með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair, sölu á Vildarenglinum um borð í vélum Icelandair og söfnunarbaukum á Keflarvíkurflugvelli og söluskrifstofu Icelandair.

Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur - flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. Við síðustu úthlutanir hafa margar fjölskyldnanna valið að fara til Flórída og heimsækja Disneyland.
Starfsemi Vildarbarna Icelandair byggir á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og nú stjórnarformaður Icelandair Group, en Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Hún er nú í stjórn Vildarbarna Icelandair.

Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, en Sigurður Helgason er formaður stjórnar hans.

Á myndinni eru styrkþegar dagsins ásamt fjölskyldum þeirra og forsvarsmönnum Vildarbarnasjóðsins.