Pingdom Check
07/15/2021 | 7:00 AM

Vetnis- og rafmagnsknúið innanlandsflug

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna um þátttöku Icelandair í tveimur spennandi verkefnum sem gætu gjörbreytt kolefnislosun í innanlandsflugi á fáum árum. 

Annars vegar undirritaði félagið viljayfirlýsingu við fyrirtækið Unversal Hydrogen, en það hefur hannað orkuskiptabúnað sem gæti gert okkur kleift að knýja Dash-8 vélarnar okkar eingöngu með vetni. Hins vegar var skrifað undir viljayfirlýsingu við fyrirtækið Heart Aerospace, sem vinnur að þróun farþegaflugvéla sem ganga fyrir rafmagni.

Við setjum markið hátt þegar kemur að umhverfismálum og teljum okkur vera í góðri stöðu til að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. Heart Aerospace og Universal Hydrogen hafa kynnt spennandi lausnir sem henta vel fyrir innanlandsflug og hægt væri að taka í notkun innan fárra ára. Eftir því sem tækninni fleygir fram vonumst við svo til þess að hægt verði að nýta þá reynslu sem skapast af orkuskiptum í innanlandsflugi til hraðari innleiðingar nýrra orkugjafa í millilandaflugi.

Við höfum unnið með Heart Aerospace um nokkurt skeið og munum á næstunni setja af stað greiningarvinnu í samvinnu við Universal Hydrogen. Á sama tíma munum við hefja samtal við aðra hagaðila, svo sem rafmagns- og vetnisframleiðendur, flutningafyrirtæki og stjórnendur flugvalla um málið.

Við erum stolt af því að vera meðal fyrstu þátttakenda í tveimur mikilvægum verkefnum á sviði orkuskipta í flugheiminum.

215127984_1246073692480392_1218514998221040727_n.png.webp