Flug til Madríd með Icelandair, verð frá
Flug til Madríd á næstu þremur mánuðum
Reykjavík (KEF)-
Madríd (MAD)Reykjavík (KEF)-
Madríd (MAD)* Þau verð sem birtist á síðunni hafa verið tekin saman síðustu 72 klst. og vera má að þau séu ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir valkvæðar viðbætur.
Planaðu ferðalag til Madríd með góðum fyrirvara
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 01. jún. 2024 - 19. jún. 2024 | Frá 41.475 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 12. jún. 2024 - 19. jún. 2024 | Frá 41.475 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 08. jún. 2024 - 15. jún. 2024 | Frá 41.465 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 13. júl. 2024 - 27. júl. 2024 | Frá 51.365 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 24. júl. 2024 - 31. júl. 2024 | Frá 51.365 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 18. mar. 2024 - 08. apr. 2024 | Frá 92.315 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 08. maí 2024 - 15. maí 2024 | Frá 95.235 kr.* |
FráReykjavík (KEF) | TilMadríd (MAD) | Báðar leiðir / Economy | 29. maí 2024 - 01. jún. 2024 | Frá 41.465 kr.* |
* Þau verð sem birtist á síðunni hafa verið tekin saman síðustu 72 klst. og vera má að þau séu ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir valkvæðar viðbætur.
Ferðalag til Madríd
Reyndu að fá sem mestan svefn áður en flugvélin snertir jörð í Madríd; þessi borg vakir helst frameftir og okkur grunar að þú viljir ekki missa af því. Barir og næturlíf eru margrómuð – en það er sitthvað fleira um að vera í þessari skemmtilegu borg.
Madríd er menningarborg þar sem ferðalangar geta virt fyrir sér list á heimsmælikvarða, fjöruga flamenco-dansa og þrumuskot á fótboltavellinum.
Hallir, torg... og Prado
Byrjaðu daginn á því að fylgjast með mannlífinu og skipuleggja ferðina með drykk í hönd við eitt af stóru torgunum. Þú getur valið úr fjölmörgum fallegum torgum; Plaza Mayor, Plaza de Cibeles og Puerta del Sol eru allir góðir valkostir. Svo þarf að taka ákvörðun: Viltu fara í skoðunarferð um hina dýrðlegu konungshöll, Palacio Real, eða skoða stórkostleg listaverk í Museo del Prado eða Museo Reina Sofia? Ekki má missa af spænskum stórmeisturum á borð við Picasso, Goya, Dalí og Velázquez.
Ef þú hefur meiri áhuga á fótbolta skaltu halda beint á Santiago Bernabéu, heimavöll Real Madrid, eða á Wanda Metropolitano, heimavöll Atlético Madrid. Fáðu þér miða á leik og fagnaðu með hinum tugþúsundum áhangenda og upplifðu alvöru ástríðu eða farðu einfaldlega í skoðunarferð um leikvanginn. Smá siesta seinnipart dags sakar ekki – El Retiro er dásamlegur garður fyrir smá stopp. Kvöldið býður þín með úrvali af menningartengdri afþreyingu: Hvernig væri að fara á ósvikna flamenco-sýningu eða jafnvel sjá eitt umdeilt nautaat?
Ljúffengir munnbitar og svo margt fleira
Til í að leika við bragðlaukana? Farðu í leiðangur um líflegu tapasbarina í La Latina-hverfinu. Haltu í átt að strætinu Calle de la Baja til að upplifa alvöru úrval af tapas, allt frá hefðbundnum réttum til tapas með nútímalegu ívafi. Meðal annarra hverfa sem státa af mörgum veitingastöðuum eru Malasaña, Chueca og Salamanca. Leitaðu eftir einkennisrétti borgarinnar, cocido madrileño, sem er kássa úr kjúklingabaunum. Þetta er saðsamur réttur með fullt af kjöti og grænmeti, og best er að njóta hans á vetrarkvöldum.
Markaðir og mathallir bjóða einnig upp ljúffenga rétti. Mercado de San Miguel er einkar fallegur markaður sem eldist vel og Platea í Salamanca er glæsilega endurppgert leikhús sem er heimastaður framúrskarandi úrvals af veitingastöðum og börum. Þar er einnig svið þar sem oft fara fram spennandi tónleikar.
Flóamarkaðir og hönnun
Gaman er að vafra um El Rastro á sunnudagsmorgnum – þessi stóri flóamarkaður er endalaus uppspretta af fjársjóðum og skrani. Ef þú ert í leit að hefðbundnari verslunum skaltu halda til hverfisins Salamanca en þar eru stórverslanir og spænsk hátískuvörumerki sem keppast um athygli ásamt flottum hönnunarbúðum (Halló skóbúðir!). Calle de Serrano er góð gata ef þú ætlar að endurnýja fataskápinn og sérvörur eru fáanlegar á Calle de José Ortega y Gasset.
Hægt er að finna flotta spænska hönnun í hverfunum Malasaña, Chueca og La Latina. Flottir minjagripir eru seldir í verslunum stórsafnanna og það er ekkert lát á sælkeravörum sem þú getur tekið með heim (skinka, vín, ostar, olífur og fleira).