Pingdom Check

Gjafabréf Icelandair

Gleddu þá sem þér þykir vænt um og uppfylltu langþráða ferðadrauma.

Gefðu vinum og ættingjum flug að eigin vali

Áttu í vandræðum með að velja gjöf sem hittir í mark hjá þínum nánustu?

Hvað með að gefa ávísun á flugferð, þar sem viðtakandinn velur hvaða land skuli leggja undir fót?

Handhafar gjafabréfa Icelandair geta valið milli allra áfangastaða Icelandair í Evrópu og Norður-Ameríku, á Grænlandi og Íslandi. Þar að auki gilda þau í heil fimm ár frá útgáfudegi.

Svona kaupir þú gjafabréf

Með korti: Þú velur mynd, upphæð gjafabréfsins og gjaldmiðil og bætir svo við fallegum skilaboðum til þess sem fær gjafabréfið. Þegar það lítur út eins og þú vilt hafa það, geturðu lokið við kaupin.

Með Vildarpunktum: Smelltu á Kaupa gjafabréf Icelandair á Saga Club reikningnum þínum. Næst velurðu fjölda Vildarpunkta, svo fjölda gjafabréfa og á síðasta skjá staðfestir þú kaupin. Athugaðu að útlit og texti gjafabréfa er staðlað þegar þau eru keypt með Vildarpunktum.

Svona notar þú gjafabréf

Þegar þú hefur valið flug og það kemur að því að greiða fyrir flugið í bókunarferlinu, skaltu smella á Nota aðra greiðslumáta. Þá opnast gluggi þar sem þú getur slegið inn einn eða fleiri gjafabréfakóða. Það er ekki hægt að nota gjafabréfin eftir að búið er að bóka, heldur aðeins á meðan þú bókar flugið.

Beðið verður um greiðslukortaupplýsingar í ferlinu sem öryggisráðstöfun, jafnvel þó að öll ferðin sé greidd með gjafabréfum. Ef gjafabréfið dugir ekki fyrir greiðslu fyrir flugið verður eftirstandandi upphæð gjaldfærð af greiðslukorti. Eftir að bókun lýkur færðu sendan rafrænan farmiða og kvittun í tölvupósti.

Gakktu úr skugga um að þú lesir vel yfir skilmála fyrir gjafabréf, þar sem þeir geta verið mismunandi eftir tegundum gjafabréfa.