Pingdom Check

Tilboð til fimm skemmtilegra áfangastaða!

Icelandair og Olís bjóða Saga Club félögum í Vinahóp Olís frábært tilboð til fimm borga: Boston, Genf, Kaupmannahafnar, Madríd og Tel Aviv.

Félagar fá 20% afslátt með afsláttarkóðanum: OLIS þegar bókað er á vefnum á Economy Standard, Economy Flex, Saga Premium og Saga Premium Flex.

Bókunartímabil: 1. - 3. mars

Ferðatímabil: maí & september, 2023

Afslátturinn er í boði hvort sem greitt er með Vildarpunktum eða öðrum greiðsluleiðum, en ekki er afsláttur af sköttum og gjöldum. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig inn á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni sem kemur upp í lokaskrefi bókunar.

Saga Club félagar safna einnig Vildarpunktum við það að greiða fyrir flugið með punktum, eina sem þarf að muna er að setja inn Saga Club númerið í bókun.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Munurinn á Vildarpunktum og Fríðindastigum er sá að Vildarpunktar eru til að nota og Fríðindastig eru til að njóta.

Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug og aðrar vörur, svo sem veitingar um borð, þráðlaust net, hótel, bílaleigubíl og margt fleira.

Fríðindastig segja til um hvers konar aðild félagar eru með í Icelandair Saga Club og þá hvers konar fríðinda félagar njóta hjá Icelandair.

Saga Club félagar safna jafnmörgum Vildarpunktum og Fríðindastigum fyrir flug með Icelandair. Hér er hægt að sja hversu mikið félagar safna fyrir flug með Icelandair.