Pingdom Check

Tvöfaldir Vildarpunktar & tvöföld Fríðindastig

Tvöföld ánægja í Skandinavíu! Núna er rétti tíminn til að bóka flug til Norðurlandanna. Þú færð nefnilega tvöfalda Vildarpunkta og tvöföld Fríðindastig fyrir öll flug til Skandinavíu. Það eina sem þú þarft að gera er að setja inn Saga Club númerið þitt í bókunina. Að fluginu loknu færðu Vildarpunktana og Fríðindastigin á Saga Club reikninginn þinn ásamt tvöfölduninni. Bókaðu núna og fljúgðu út í vor.

Áfangastaðirnir eru Billund, Helsinki, Kaupmannahöfn, Osló og Stokkhólmur.

Ferðatímabil er 1. mars til 31. maí næstkomandi.

Bókunartímabil er 7. til 10. febrúar.

Athugið að ferðin skal hefjast á Íslandi.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Munurinn á Vildarpunktum og Fríðindastigum er sá að Vildarpunktar eru til að nota og Fríðindastig eru til að njóta.

Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug og aðrar vörur, svo sem veitingar um borð, þráðlaust net, hótel, bílaleigubíl og margt fleira.

Fríðindastig segja til um hvers konar aðild félagar eru með í Icelandair Saga Club og þá hvers konar fríðinda félagar njóta hjá Icelandair.

Saga Club félagar safna jafnmörgum Vildarpunktum og Fríðindastigum fyrir flug með Icelandair. Hér er hægt að sja hversu mikið félagar safna fyrir flug með Icelandair.