Pingdom Check

25% Vildarpunktaafsláttur - allir pakkar & valdir áfangastaðir

Dagana 12. - 14. mars fá Saga Club félagar 25% allra Vildarpunkta sem notaðir eru til að greiða fyrir pakka eða valda áfangastaði endurgreidda. Tilboðið gildir fyrir allar pakkaferðir Icelandair VITA og einnig fyrir flug á eftirfarandi áfangastaði Icelandair: Alicante, Amsterdam, Boston, Brussel, Dublin, Færeyjar, Helsinki, London Gatwick, Manchester, Mílanó, New York (JFK), Prag, Stokkhólmur og Toronto.

Ferðatímabil: 1. apríl - 31. maí, 2024.

Sölutímabil: 12. - 14. mars, 2024.

Afslátturinn er í formi endurgreiðslu, þannig að Saga Club félaginn fær 25% Vildarpunkta endurgreidda inn á Saga Club reikninginn sinn innan 24 tíma frá bókun.

Hægt er að greiða með punktum eða öðrum greiðsluleiðum, en afslátturinn gildir einungis á þann hluta sem greiddur er með Vildarpunktum. Til þess að nota Vildarpunkta til þess að greiða fyrir flug, getur þú annað hvort skráð þig á Saga Club reikninginn þinn í bókunarflæðinu eða á greiðslusíðunni.

Athugaðu að ferðin skal hefjast frá Íslandi til þess að fá afsláttinn og að félagar safna einnig Vildarpunktum þegar þeir nota punkta.

Vildarpunktar og Fríðindastig - hver er munurinn?

Um Vildarpunkta

Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaup vörur og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum um allan heim.

Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíl, gjafakort og margt fleira.

Um Fríðindastig

Alltaf þegar Saga Club félagar safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.

Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.