Flug til Portland (PDX) í Oregonfylki á vesturströnd Bandaríkjanna .is | Icelandair
Pingdom Check

Flug til Portland

Icelandair býður ódýrt beint flug til Portland. Íbúafjöldi á Portland svæðinu nemur um 2,3 milljónum íbúa. Portland er í um þriggja klukkustunda akstursfjarlægð frá Seattle.

Allir byrja smátt, og Portland í Oregon-fylki er þar engin undantekning. Borgin byrjaði sem áningarstaður við ána Willamette fyrir ferðalanga á leið milli borgarinnar Oregon og Vancouver-virkisins um miðja 19. öld og hefur allar götur síðan vaxið og dafnað.

Portland

Bandaríkin
Fólksfjöldi: 655.000 (2019)Svæði: 375,5 km²Samgöngur: TriMet er með rútur á svæðinu, MAX (léttlest) og WES (lest).Gjaldmiðill: BandaríkjadalurSpennandi hverfi: Downtown - Division - Pearl District - Nob Hill - Hawthorne - Alberta Arts District

Næring andans - og magans

Þú getur glatt andann á margan hátt í Portland. Til að mynda er þar víðfrægur rósagarður, International Rose Test Garden, þar sem 8.000 rósategundir fylla loftið angan og gleðja augað ekki síður, enda litfagrar með meiru. Eins geturðu svalað fróðleiksþorstanum í Oregon Museum of Science and Industry. Sértu meira fyrir upplyftingu bragðlaukanna eru þér margir vegir færir. Þú getur hafið vegferð þína á bændamarkað sem selur allt frá grænmeti og tilbúnum réttum til osta og komið svo við á VooDoo Doughnut þar sem kleinurhringjahefðinni er lyft upp á æðra plan.

Fjölbreyttir útivistarmöguleikar í Portland

Jafnvægi er mikilvægt og þú getur kannað útivistarmöguleika borgarinnar með ýmsum hætti á meðan þú dvelur þar. Spókaðu þig í almenningsgarði, kannaðu gönguleiðir í Forest Park, fáðu náttúrufegurð beint í æð við Oneonta Gorge, sigldu á kayak á Willamette ánni sem borgin stendur við, njóttu útsýnisins frá Mt Tabor City Park, eða skoðað borgina á hjóli. Möguleikarnir eru nær óþrjótandi.

Gott að vita

Flugvöllurinn, Portland International Airport (PDX) og er í um 40 mínútna akstursfjarlægð frá miðborg Portland. Hægt er að taka lest, strætó, leigubíl eða hótelskutlu í miðborgina og tekur ferðin að meðaltali 20 – 40 mínútur.

Aðrir áfangastaðir

Bókaðu ferðalagið í dag

Við hlökkum til að sjá þig um borð!