Flug til Salzburg með Icelandair, verð frá

Flug til Salzburg á næstu þremur mánuðum

kr.
Vinsamlega notaðu leitarvélina efst á síðunni til að finna flug

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

 

Planaðu ferðalag til Salzburg með góðum fyrirvara

kr.
FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
01. mar. 2025 - 08. mar. 2025

Frá

44.695 kr.*

Skoðað: 3 klst. síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
28. des. 2024 - 04. jan. 2025

Frá

55.695 kr.*

Skoðað: 5 klst. síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
27. des. 2024 - 03. jan. 2025

Frá

55.695 kr.*

Skoðað: 8 klst. síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
08. feb. 2025 - 15. feb. 2025

Frá

56.195 kr.*

Skoðað: 10 klst. síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
22. feb. 2025 - 01. mar. 2025

Frá

52.195 kr.*

Skoðað: 1 dagur síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
25. jan. 2025 - 01. feb. 2025

Frá

54.695 kr.*

Skoðað: 1 dagur síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
15. feb. 2025 - 22. feb. 2025

Frá

63.695 kr.*

Skoðað: 1 dagur síðan

FráReykjavík (KEF)TilSalzburg (SZG)Báðar leiðir
/
Economy
01. feb. 2025 - 08. feb. 2025

Frá

52.695 kr.*

Skoðað: 2 dagar síðan

* Birt verð voru tekin saman á síðustu 72 klst. Möguleiki er að þau verði ekki lengur í boði þegar bókun á sér stað. Þú gætir þurft að greiða aukagjald fyrir viðbótarvörur og -þjónustu.

Ferðalag til Salzburg

Mirabell Palace in Salzburg, Austria, pictured here covered in a blanket of snow

Salzburg í hnotskurn

Það er tónlistin sem helst heldur nafni Salzburg á lofti en hún er í seinni tíð ekki síður rómuð fyrir frábær skíðasvæði í grennd við borgina. Hvorki tónlistarunnendur né skíðakappar verða sviknir af vetrarheimsókn til þessarar fögru menningarborgar í hjarta Evrópu.

Borgin er kjörinn áfangastaður fyrir alla þá sem þyrstir í að bruna niður skíðabrekkurnar, anda að sér fersku fjallalofti í faðmi Alpanna og kynnast heimaborg höfuðsnillingsins Mozart. Svo ekki sé talað um Sound of Music!

Með Icelandair VITA er hægt að bóka skíðaferð til Lungau. Flogið er til Salzburg.

Veitingar og veigar í Salzburg

Austurrísk matargerð er í senn einstök sem og lík matseld nágrannalanda, en er einnig þekkt fyrir tilraunamennsku sem framkallar skapandi og ljúffenga rétti.

Hið einstaka austurríska snitzel gæti hljómað kunnuglega en ekki rugla því saman við hið þýska, þetta er sitthvor rétturinn. Klassískt Apfelstrudel er engu líkt, en minna þekkt er Salzburger nockerl – ómissandi ljúffengt og sætt soufflé sem minnir á fjallatindana umhverfis Salzburg.

Á vetrarmörkuðum Salzburg er nauðsynlegt að fá sér einn bolla af Glühwein, frískandi og heitan drykk sem yljar á köldum dögum.

Einnig er hægt að bragða á Kasekrainer, hefðbundinni austurrískri pylsu sem fyllt er með osti, eða pofesen – samlokum sem velt er upp úr eggi og með austurrískri plómusultu, eitthvað sem auðvelt er að borða meðan leitað er að földum markaðsfjársjóði.

Two hands handling pofosen, which are soft dough-like sweet bites, from pan to plate
An overhead shot of the winter markets in Salzburg, lit up with Christmas lights

Hvað er við að vera í Salzburg?

Í Salzburg má finna ófáa minnisvarða um sögu Austurríkis. Enginn má láta safnasvæðið DomQuartier fram hjá sér fara, með sínar tignarlegu byggingar í barokkstíl og sögusýningar í hæsta gæðaflokki.

Einnig er við hæfi að heimsækja fæðingarstað þekktasta íbúa Salzburg fyrr og síðar á Getridegasse nr. 9. Ef einhver skyldi ekki vera með á nótunum, minna súkkulaðihúðaðar og marsipanfylltar Mozartkúlurnar sem víða fást til sölu á það hver er aðalmaðurinn í þessum bæ!

Svo er kjörið að fara í göngutúr um gamla bæinn, þar sem andi fimmtándu aldar svífur yfir vötnum, og líta í búðir og á kaffihús. Hér eru byggingar sem hafa staðið vaktina í miðbænum síðan löngu fyrir daga Mozarts.

Og hvers vegna ekki að kynnast borginni með augum austurrískra aðalsmanna fyrri tíðar og taka sér ferð með Fiaker, sérstakri tegund hestakerra sem tíðkast á svæðinu?

Á skíðum í Salzburg

Salzburg er staðsett í hjarta austurrísku skíðaparadísarinnar, í héraðinu SalzburgerLand. Á veturna er stefnan tekin á Alpaævintýri í sindrandi snæviþöktum fjöllunum.

Í grennd við borgina eru margar þekktar skíða- og snjóbrettabrekkur, eins og Kitzbühel, Saalbach-Hinterglemm (skíðasirkusinn svokallaði), Zillertal og Obertauern. Í raun eru skíðabrekkur svo langt sem augað eygir.

Héraðið býður upp á skíðaupplifun sem hentar skíðaiðkendum af öllu tagi – Ertu byrjandi? Þú finnur um 110 skíðaskóla á svæðinu. Viltu brattari brekkur? Hér er nóg af skíðabrekkum fyrir þau allra djörfustu. Upplýstar brekkur? Já. Fjölskylduvæn svæði? Auðvitað! Viltu skíða niður jökla, skella á þig snjóþrúgum fyrir göngu, eða skauta á spegilsléttu skautasvelli? Það er allt mögulegt.

Alls staðar eru ekta Alpakofar sem bjóða mat og drykk þegar batteríin klárast, svo þú veist að veitingar eru aldrei langt undan.

Two people moving up a mountain on skis while wearing colourful backpacks