Icelandair Saga Club er fríðindakerfi Icelandair og með því að gerast félagi færðu enn meira út úr ferðalaginu!
Félagar í Saga Club:
Allir sem eru 12 ára og eldri geta skráð sig í Saga Club.
Um Vildarpunkta
Félagar í Icelandair Saga Club safna Vildarpunktum þegar þeir kaupa vöru og þjónustu hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum okkar um allan heim.
Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár. Hægt er að nota punkta til greiðslu fyrir flug, veitingar um borð, hótel, bílaleigubíla, gjafakort og margt fleira.
Um Fríðindastig
Alltaf þegar félagar í Saga Club safna Vildarpunktum með kaupum á flugi eða veitingum um borð, ávinna þeir sér samsvarandi upphæð Fríðindastiga.
Munurinn er sá að þú notar ekki Fríðindastigin, heldur safnast þau upp (þau fyrnast eftir 12 mánuði). Þegar tilskildum fjölda stiga er náð veita þau Saga Silver og svo Saga Gold aðild og þar með aukin fríðindi.