Félagar í Icelandair Saga Club safna bæði Vildarpunktum og Fríðindastigum. Félagar safna jafn mörgum Vildarpunktum og Fríðindastigum fyrir flogin flug með Icelandair, Alaska Airlines og JetBlue sem og fyrir vörur og veitingar um borð hjá Icelandair.
Munurinn er einfaldur:
Vildarpunktar eru til að nota
Vildarpunktum safna félagar hjá Icelandair og hjá samstarfsaðilum okkar um allan heim. Vildarpunktana geta félagar svo notað til kaupa á vörum og þjónustu hjá Icelandair og samstarfsaðilum um allan heim. Vildarpunktar gilda í allt að 4 ár þ.e. almanaksárið sem Vildarpunktar ávinnast og næstu 3 ár.
Fríðindastig eru til að njóta
Fríðindastig safnast fyrir flug með Icelandair, Alaska Airlines, JetBlue og einnig fyrir vörur og veitingar um borð. Fríðindastigin segja til um hvers konar aðild félaginn á rétt á og þar með hvaða fríðindi hann nýtur. Þegar félagar hafa náð 40.000 Fríðindastigum fá þeir Saga Silver aðild og þegar þeir hafa náð 80.000 Fríðindastigum fá þeir Saga Gold aðild.
Þegar félagar hafa náð Saga Gold aðild fá þeir 20% álag á Fríðindastig og félagar í Saga Silver fá 10% álag á Fríðindastig ásamt því að þurfa aðeins 30.000 Fríðindastig fyrir Saga Silver endurnýjun og 70.000 Fríðindastig fyrir Saga Gold endurnýjun sem auðveldar þeim að halda kortunum sínum. Athugið að Fríðindastig fyrnast á 12 mánuðum.