Innifalið í pakkanum
Borgarferðir til Amsterdam frá Akureyri.
Frá 15. október til 30. nóvember 2023 bjóðum við upp á flug frá Akureyri og þaðan út fyrir landsteinana, með stuttri viðkomu í Keflavík. Er því ekki tilvalið að skella sér í skemmtilega borgarferð til Amsterdam á þessu tímabili.
Nánari upplýsingar um flugið frá Akureyri er að finna hér.
Amsterdam er heillandi borg sem gaman að skoða á fótgangandi - eða hjólandi. Borgin, eins og Holland allt, er þekkt fyrir reiðhjólamenningu sína. Þetta er algengasti fararmátinn og það er algjörlega dásamlegt að skjótast um göturnar og meðfram síkjunum á hjóli.
Borgin býður upp á margt skemmtilegt að gera og skoða. Hún er fjölskylduvæn, barnaleiksvæði og fallegir almenningsgarðar eru víðs vegar um borgarhverfin og stutt frá aðallestarstöðinni er eitt skemmtilegasta vísindasafn Evrópu, NEMO.
- Athugið að verð frá og sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.