Sumarhús í Danmörku - Lalandia flug með Icelandair | Icelandair
Pingdom Check
FLUG
HÓTEL

Sumarhús í Danmörku - Lalandia

Icelandair og Ferðaskrifstofan VITA sameina nú krafta sína og bjóða upp á úrval pakkaferða undir merki Icelandair VITA.
Icelandair VITA logo

Innifalið í pakkanum

Icelandair logo
FLUG
Báðar leiðir
Flug báðar leiðirEconomy Standard
Innrituð taska 23kg
Handfarangurstaska 10kg
Sætaval
100% Vildarpunktasöfnun
HÓTEL
Gisting í þrjár nætur í sumarhúsiGisting í sumarhúsi
ANNAÐ
Skattar og gjöld
Flugvallarskattar og gjöld

Vildarpunktar
Félagar í Saga Club safna Vildarpunktum í pakkaferðum Icelandair VITA
Verð fráTakmarkað framboð
ISK 74700

Frábært fjölskyldufrí og fjölbreytt afþreying. Flug til og frá Billund

Sumarhús í Danmörku er frábært val fyrir fjölskylduna í fallegu umhverfi. Í húsunum er góð aðstaða og umhverfið býður upp á skemmtun fyrir börn og fullorðna.
Þessar pakkaferðir miðast við brottfarir frá Keflavík til Billund og eru í boði frá 31. mars til 27. október 2023. Húsin eru í Lalandia og lágmarksdvöl er 3 nætur en hámarksdvöl 14 nætur.

Farþegar koma sér sjálfir til og frá flugvelli í Billund. Hægt er að bóka bíl á meðfylgjandi link.

Innifalið er frír aðgangur að vatsnrennibrautarsvæðinu Aquadome og Monky Tonky Playland.

Húsið fæst afhent á komudegi kl. 15.00 og þarf að skila því af sér kl. 10.00 á brottfarardegi. Gestir fá þá úthlutað hús og kóða sem gildir að svæðinu og húsinu.

Hægt er að leigja sængurver og er það greitt á staðnum. Rafmagn og hiti fyrir húsin greiðast aukalega á staðnum. Eitt til tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús, fer eftir stærð húsa. Frítt í klukkutíma í bílastæði við Lalandia Centre. Frekari upplýsingar er að finna hér.

Þeir farþegar sem koma eftir klukkan 21:00 og búið er að loka Lalandia Centre þar sem innritun fer fram þá er hægt að hafa samband daginn fyrir komu í síma +45 7614 9470 og fengið úthlutað húsnúmer og kóða. Ef þörf er á að leigja sængurver þá er einnig hægt að panta það og mæta svo daginn eftir komu í Lalandia Centre og ganga frá greiðslu.

Legoland, sem er sannkallaður ævintýraheimur fyrir börn er í næsta nágrenni við Lalandia.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair. 


fráISK 74.700 Takmarkað framboð
Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu