Innifalið í pakkanum
Borgarferðir til frá Akureyri.
Frá 15. október til 30. nóvember 2023 bjóðum við upp á flug frá Akureyri og þaðan út fyrir landsteinana, með stuttri viðkomu í Keflavík. Er því ekki tilvalið að skella sér í skemmtilega borgarferð til Dublin á þessu tímabili.
Nánari upplýsingar um flugið frá Akureyri er að finna hér.
Borgin Dublin er rómuð fyrir fjörugt mannlíf, skemmtilega veitingastaði og óteljandi pöbba.Í Dublin eru vel á annað þúsund barir og krár, þar sem þjóðdrykkirnir Guinness (dökkur bjór), Jameson (viský) og Bailey's (rjómalíkjör) njóta iðulega mestu vinsældanna. Það verður ekki tekið af Írunum að þeir kunna sannarlega að skemmta sér og hin svokallaða „pöbba-stemning“ sem gjarnan myndast er sannarlega ógleymanleg. Segja má að gönguferð í Temple Bar hverfinu sé hreinlega upplifun út af fyrir sig, slík er stemmningin þar þegar kvölda tekur.
Dublin á Írlandi er einstök borg sem hefur unnið hug og hjörtu margra Íslendinga í gegnum árin, enda er varla annað hægt en að hrífast af umhverfinu, menningunni og lífsgleði innfæddra. Frá Íslandi er aðeins tveggja tíma flug til Dublinar sem við fullyrðum að sé í hópi skemmtilegustu borga Evrópu.
Aðalverslunargatan í Dublin er Grafton Street og þar fást alls konar dýrgripir en svo er einnig hægt að gera góð kaup í verslunarmiðstöðvum borgarinnar.Guinness verksmiðjan er mikið aðdráttarafl og skemmtileg safn með stórkostlegum útsýnisbar á efstu hæðinni.Þú finnur nokkra fallega garða í Dublin sem gaman er að gang eða hjóla í gegnum, sögufrægar byggingar og allt frá Þjóðminjasafni yfir í Nútímalistasafn.
- Athugið að verð frá og sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.