Pingdom Check
FLUG
HÓTEL
UPPLIFUN

HM 2023 milliriðill - AUKAFERÐ - UPPSELT

Innifalið í pakkanum

Verð fráVerð á mann m.v. 2 fullorðna
ISK 152.900

Uppselt er í fyrstu og aukaferðina . Aukaferð númer tvö er komin í sölu.

Vegna fjölda fyrirspurna höfum við ákveðið að setja upp aukavél tvö fyrir þennan skemmtilega viðburð.

Við trúum og treystum á það að Íslenska landsliðið komist áfram og leiki milliriðilinn sinn í Gautaborg í janúar 2023.

Pakkaferð HM í handbolta - milliriðill

  • Leikirnir fara fram á leikvanginum Scandinavium Arena í Gautaborg.
  • Sætin sem íslendingar fá á milliriðil HM í handbolta eru í hólfi G og H (samliggjandi hólf).
  • Nánari upplýsingar varðandi miðaafhendinguna birtast síðar.

Allir íslendingarnir í okkar ferðum koma til með að gista á The Weaver Quality Hotel 4*

The Weaver Quality Hotel 4*

Verð á mann í tvíbýli í 2 nætur frá kr. 152.900,-

Verð á mann í einbýli í 2 nætur frá kr. 179.900,-

Innifalið: Flug, gisting í tvær nætur á The Weaver Quality Hotel 4*með morgunverði og dagpassar 20. og 22. janúar. Rúta til og frá flugvelli erlendis, rúta til og frá leikvangi, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 10kg handfarangurstösku.

20.janúar 2023 - Keflavík – Gautaborg. Brottför frá Keflavík með FI1554 klukkan 08:15, lending í Gautaborg klukkan 12:15.
Rúta fer með farþega á The Weaver Quality Hotel. Strax eftir innritun fer rúta fer með farþega í Scandinavium Arena Stadium og aftur á hótel eftir leiki dagsins.

21.janúar 2023 - Frjáls dagur

22.janúar 2023 - Farþegar fara með farangurinn sinn í rútuna sem fer með þá í Scandinavium Arena Stadium til að sjá leiki dagsins. Rútan bíður með farangurinn fyrir utan höllina. Rúta fer með farþega út á flugvöll eftir leiki dagsins. Gautaborg - Keflavík, brottför frá Gautaborg með FI1555 klukkan 00:45, lending í Keflavík klukkan 02.45 aðfaranótt 23.janúar.

*Athugið að sætaframboð er takmarkað. Icelandair áskilur sér rétt til að fella niður ferðina ef fjöldi skráðra þátttakenda er færri en 120.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair.

fráISK 152.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu