Innifalið í pakkanum
Borg sem gleður augað
París á sér margar hliðar enda þekkt fyrir hverfin sín 20 og einstakt mannlífið í hverju þeirra. Hvort sem þú ert á
leið í verslunarleiðangur á Champs Elysées, ganga í fótspor listamanna í Montmartre eða kanna þekktustu
kennileitin á borð við Frúarkirkjuna, Eiffelturninn og Sigurbogann, þá verður enginn svikinn af þessari mögnuðu borg.
Það er tilvalið að fara í stuttar dagsferðir frá París. Í nágrenni borgarinnar er Versalahöllin og Loire-dalurinn, en þar er að finna stórglæsilegar hallir sem áður voru sumarhús frönsku hirðarinnar. Euro Disney er einnig í stuttri fjarlægð sem gaman er að heimsækja með fjölskyldunni.
Hótel í París innheimta borgarskatt við komu á hotel, EUR 2-3 á dag, sem greitt er á hótelinu sjálfu.
Hægt er að kaupa gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýta sem greiðslu í pakkaferðina.