Pingdom Check
Tilboðið er á enda

Þessi pakki er ekki lengur í boði. Hér eru nokkrir svipaðir pakkar sem þú gætir haft áhuga á.

Svipaðir pakkar

Í Bradenton er stórkostlegt að njóta sólar og hressingar á baðströndum sem margir telja hinar bestu á Flórida.

Hér geta ferðamenn leikið golf á 19 frábærum golfvöllum. Í menningar- og sólskinsbænum Sarasota, um 20. mín. akstur suður frá Bradenton, er ótal margt að sjá og skoða þegar fólk vill hvíla sig á sólböðum og busli í flæðarmálinu. Bradenton og Sarasota eru samtals um 40 verslanamiðstöðvar og því er þetta svæði einnig kjörið til verslunar. Pakkaferðir á tímabilinu 1.janúar til 10. júní 2018.

Flogið er til Tampa og er um klukkustundar akstur yfir til Bradenton. Fólk kemur sér sjálft til og frá frá flugvelli á hótelið.

Verð á mann í tvíbýli í 4 nætur frá kr. 110.000.-
Verð á mann í einbýli í 4 nætur frá kr. 149.000.-

Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 10kg handfarangurstösku.

Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni. Athugið að ekki er hægt að bóka hótel í Bandaríkjunum nema fólk hafi náð 21 árs aldri.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair. Þú safnar 4800 punktum fyrir þessa ferð. 

Eru ferðapappírarnir þínir í lagi? Ertu búin/n að sækja um ESTA og fylla út APIS?

Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.

Hótel í Flórida áskilja sér rétt til til að innheimta við komu á hótel viðbótargjald (resort fee) frá usd 2 til usd 15 á dag. Þetta er ekki hægt að greiða áður heldur þarf að greiða þessa upphæð aukalega beint til hótelsins við komu.

Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu