Pingdom Check
Tilboðið er á enda

Þessi pakki er ekki lengur í boði. Hér eru nokkrir svipaðir pakkar sem þú gætir haft áhuga á.

Svipaðir pakkar

Sumarhús í Danmörku er frábært fjölskyldufrí, fallegt umhverfi, góð aðstaða og fjölbreytt afþreying fyrir börn og fullorðna. Þessar pakkaferðir miðast við brottfarir frá Keflavík til Billund. Farþegar koma sér sjálfir til og frá Billund.

Bjóðum pakkaferðir til Lalandia sem er ekki langt frá Billund. Lágmarksdvöl er 7 nætur og hámarksdvöl 14 nætur. Pakkaferðirnar  miðast við brottfarir frá Keflavík til Billund frá 6.maí til 24.október 2022.

Verð frá á mann í sjö nætur:

2 í húsi frá 135.500.-

3 í húsi frá 107.300.-

4 í húsi frá 91.200.-

5 í húsi frá 103.700.-

6 í húsi frá 96.400.-


Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 10kg handfarangurstösku.

Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.

Það er frír aðgangur að vatsnrennibrautarsvæðinu Aquadome og Monky Tonky Playland.

Húsið fæst afhent á komudegi kl. 15.00 og þarf að skila því af sér kl. 10.00 á brottfarardegi. Gestir fá þá úthlutað hús og kóða sem gildir að svæðinu og húsinu. 

Hægt er að leigja sængurver og er það greitt á staðnum (dkk 99 á mann). Rafmagn og hiti fyrir húsin greiðast aukalega á staðnum. Eitt til tvö bílastæði eru fyrir framan hvert hús, fer eftir stærð húsa. Frítt í klukkutíma í bílastæði við Lalandia Centre. Frekari upplýsingar er að finna hér.

Þeir farþegar sem koma seint og búið er að loka Lalandia Centre þar sem innritun fer fram þá er hægt að hafa samband í síma +45 7614 9470 daginn fyrir komu og fengið úthlutað húsnúmer og kóða. Ef þörf er á að leigja sængurver þá er einnig hægt að panta það og mæta svo daginn eftir komu í Lalandia Centre og ganga frá greiðslu.

Legoland, sem er sannkallaður ævintýraheimur fyrir börn er í næsta nágrenni við Lalandia. 

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair. Þú safnar 3400 punktum fyrir þessa ferð. 

Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.

Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu