Pingdom Check

Tenerife

Afslöppun og ævintýri allt árið um kring

Tenerife er vinsæll áfangastaður og það er ekki að ástæðulausu.
Eyjan er með fallegar gylltar strendur, fjölbreytt úrval af gistimöguleikum og alls kyns afþreyingu sem hentar öllum tegundum ferðalanga. 

Tenerife er skemmtilegur ferðamannastaður þar sem afslöppun og upplifun mætast. Þarna finnur þú spænska menningu og matargerð ásamt öðrum spennandi kostum.
Sól og sandur er auðvitað í stóru hlutverki á Tenerife en eyjan hefur upp á svo margt annað að bjóða líka.

Strendurnar
Meðfram allri ströndinni á suðurhlutanum er “göngugata” þar sem auðvelt er að rölta á milli staða. Það er ekki nema um hálftímaganga á milli Amerísku strandarinnar og Costa Adeje. Einnig bjóða mörg hótel upp á frítt skutl frá Costa Adeje og Playa Fanabe niður á Amerísku ströndina og Playa de las Vistas. Þaðan er líka stutt að ganga yfir á Playa de Los Cristianos.

Höfuðborgin

Í höfuðstaðnum Santa Cruz á norðaustanveðri eyjunnar er tilvalið að versla og eru allar helstu verslanir þar þ.á.m. H&M, Zara og Primark. Flesta daga vikunnar má finna útimarkaði á eyjunni, sem selja allt milli himins og jarðar.
Á eyjunni er svo hægt að stunda hina ýmsu útivist og bóka sig bæði í skipulagðar ferðir eða fara á eigin vegum. 

Hér neðar á síðunni má lesa um hina ýmsu afþreyingu og nánar um strendurnar á Tenerife. 

Njóttu þess að hlakka til þegar þú bókar ferð til Tenerife og vertu viss um að gleyma ekki sundfötunum og sólarolíunni.

Innifalið í pakkanum

Flug báðar leiðir

Economy Standard
Báðar leiðir
Flugvallarskattar og gjöld
Vildarpunktar og Fríðindastig
Sætisval á völdum svæðum

Hótel

Skoðaðu úrval gististaða í bókunarvél

Farangur

Handfarangurstaska 10 kg
Innrituð taska 23 kg

Fararstjóri

Íslensk fararstjórn

Gististaðir

fráISK 109.900 Verð á mann m.v. 2 fullorðna
fra-feria2
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu