Pingdom Check
frá64.200 kr.

Brighton er skemmtilegur lítill strandbær ekki langt frá London Gatwick flugvelli. Úrval veitingastaða og verslana er í miðbænum.

Flogið er til Gatwick flugvallar og koma farþegar sér svo sjálfir til Brighton. Tíðar lestarferðir eru frá flugvellinum til Brighton (15 mínútna fresti) og tekur ferðin ekki nema um 30-40 mínútur með lest.

Tilboðsferðir til Brighton á völdum dagsetningum. Í boði eru 2-5 nátta ferðir.

Verð á mann í tvíbýli í 2 nætur frá kr. 64.200.-
Verð á mann í einbýli í 2 nætur frá kr. 86.700.-

Innifalið: Flug, gisting með morgunmat, flugvallarskattar, ein taska hámark 23kg ásamt 10kg handfarangurstösku.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair og þú safnar 3400 punktum fyrir ferðina.  

Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.

Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.

Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu