Pingdom Check
frá62.700 kr.

Tilboðsferðir til Dublinar. Dublinarbúar hafa getið sér góðan orðstír sem bráðfyndnir og dásamlegir gestgjafar og eru barirnir, tónlistin og frásagnarlistin óviðjafnanleg.

Dublin er yfirfull af fyrsta flokks skemmtun á hverju horni, allt frá heimsbókmenntun til listaverka á heimsmælikvarða. Nauðsynlegt er að drekka í sig hina margrómuðu írsku kráarmenningu - af nógu er að taka, þar sem í borginni er að finna yfir 1000 ölknæpur. Margir barir bjóða upp á mat samhliða flæðandi Guinnes bjór og írsku viskíi. Ennfremur er gott að virða fyrir sér sígilda innanhússhönnunina, spjalla við vingjarnlega borgarbúa, hlýða á ævintýralegar sögur og lifandi tónlist.

Tilboðsferðir til Dublinar á völdum dagsetningum.

Verð á mann í tvíbýli í 3 nætur frá kr. 62.700.-*
Verð á mann í einbýli í 3 nætur frá kr. 81.300.-*

Innifalið: Flug, gisting , morgunverður, flugvallarskattar og ein taska hámark 23kg ásamt 10kg handfarangurstösku.

Athugið að sætaframboð er takmarkað og uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.

Þú getur keypt gjafabréf fyrir Vildarpunkta og nýtt það sem greiðslu upp í pakkaferð með Icelandair og þú safnar 3400 punktum fyrir þessa ferð. 

Áður en haldið er af stað er gott að kynna sér skilmála pakkaferða og ef einhverjar spurningar vakna um pakkaferðir sem búið er að bóka er hægt að fylla út meðfylgjandi form.

*Uppgefið pakkaverð er miðað við lægsta flugverð í boði hverju sinni.

Touristboard
Ferðaskipuleggjandi með leyfi frá Ferðamálastofu