Framkvæmdastjórn Icelandair | Icelandair
Pingdom Check

Framkvæmdastjórn Icelandair

Alþjóðaflugstarfsemi Icelandair er kjarninn í starfsemi Icelandair Group. Í framkvæmdastjórn félagsins sitja forstjóri og framkvæmdastjórar átta sviða Icelandair Group.

Starfsemi Icelandair Group skiptist í átta svið. Sölu- og þjónustusvið, flugrekstrarsvið og flugflutningasvið vinna að því að hámarka afkomu af alþjóðlegu leiðarkerfi Icelandair. Flugvélaleiga og ráðgjöf nýtir þekkingu, reynslu og rekstrarþætti félagsins í leiguverkefnum og ráðgjöf til flugfélaga víðs vegar í heiminum. Þá vinna fjögur stoðsvið þvert á fyrirtækið: fjármálasvið, mannauðssvið, stafræn þróun og upplýsingatækni, sem og flugfloti og leiðarkerfi. Framkvæmdastjórar þessara sviða mynda framkvæmdastjórn Icelandair Group ásamt Boga Nils Bogasyni, forstjóra félagsins.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group

Bogi Nils hóf feril sinn hjá Icelandair Group í október 2008. Hann var framkvæmdarstjóri fjármála hjá Askar Capital frá janúar 2007 þar til hann hóf störf hjá Icelandair Group. Hann var framkvæmdarstjóri fjármála hjá Icelandic Group frá 2004-2006. Bogi Nils starfaði sem endurskoðandi og meðeig­andi hjá KPMG á Íslandi á árunum 1993-2004. Bogi Nils er með Cand Oecon gráðu í viðskiptum frá Háskóla Íslands og fékk réttindi sem löggiltur endurskoðandi árið 1998.

Jens Bjarnason, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs

Jens Bjarnason hefur víðtæka reynslu af flugrekstri en hann var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair á árunum 2015-2018 auk þess sem hann hefur sinnt ýmsum verkefnum hjá Icelandair Group. Hann hóf störf við verkfræðideild Icelandair árið 1984 og um tíma var hann framkvæmdastjóri loftferðaeftirlits Flugmálastjórnar. Hann var flugrekstrarstjóri Icelandair á árunum 1996-2005 og gegndi stöðu framkvæmdastjóra tækniþjónustu Icelandair (ITS) á árunum 2005-2011. Á árunum 2011-2015 var Jens forstöðumaður flugrekstrar- og tæknimála hjá alþjóðasamtökum flugfélaga, IATA, í Montreal í Kanada. Jens er með doktorsgráðu í verkfræði frá Northwestern University í Illinois í Bandaríkjunum.

Gunnar Már Sigurfinnsson, framkvæmdastjóri flutningasviðs

Gunnar Már hefur verið framkvæmdastjóri Icelandair Cargo frá árinu 2008. Frá miðju ári 2018 starfaði hann einnig sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair Group meðfram starfi sínu hjá Icelandair Cargo. Hann var framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair frá 2005-2008 og svæðisstjóri fyrirtækisins í Þýskalandi, Hollandi og Mið-Evrópu frá 2001-2005. Gunnar Már var sölustjóri Icelandair í Þýskalandi frá árinu 1997 til 2000.  Hann var sölu og markaðstjóri Flugleiða Innanlands til ársins 1997, en gegndi ýmsum störfum hjá því félagi frá árinu 1986. Gunnar Már er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.

Elísabet Helgadóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs

Elísabet starfað áður við mannauðsmál hjá Íslandsbanka, allt frá árinu 2007, og  síðustu fimm ár sín þar sem starfsþróunarstjóri. Hjá Íslandsbanka hafði hún m.a. yfirumsjón með allri fræðslu og þjálfun starfsmanna, stjórnendaþjálfun, markþjálfun og frammistöðustjórnun. Á árunum 2000-2007 starfaði hún hjá Capacent Gallup við rannsóknir og ráðgjöf. Elísabet lauk BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og MA gráðu í Mannauðsstjórnun frá EADA Business School í Barcelona árið 2007.

​Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri flugvélaleigu og ráðgjafar

Árni hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Lofteiða Icelandic síðan í janúar 2018 eftir að hafa verið fjármálastjóri fyrirtækisins frá árinu 2002. Áður starfaði hann sem fjármálastjóri tæknifyrirtækjanna ANZA og Álits. Hann er með Cand. Oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.


​Ívar S. Kristinsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Ívar var ráðinn í starf framkvæmdastjóra fjármálasviðs í maí 2021. Hann hefur starfað hjá Icelandair frá árinu 2010, síðast sem fjármálastjóri, þar áður sem framkvæmdastjóri flugflota og leiðarkerfis. Hann var forstöðumaður hjá Promens á árunum 2006-2008 og verkefnastjóri í upplýsingatækni og rekstrarstýringu hjá Icelandair frá 2000 til 2005. Ívar er með M.Sc. gráðu í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu í fjármálum frá University of North Carolina, Chapel Hill.


Rakel Óttarsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar

Rakel Óttarsdóttir hefur starfað sem framkvæmdastjóri upplýsingatækni hjá Alvotech síðan seinni hluta árs 2020 og var áður yfirmaður upplýsingatæknisviðs og alþjóðlegrar verkefnastofu Össurar (CIO and VP of Global Program Office). Fyrir þann tíma, starfaði hún í um 14 ár hjá Arion banka, þar sem hún var meðal annars framkvæmdastjóri þróunar- og markaðssvið frá 2011 og framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs frá 2016 þar sem hún leiddi mótun og framkvæmd stafrænnar stefnu bankans. Rakel er með MBA gráðu frá Duke University í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

Sylvía Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og markaðsmála

Sylvía Kristín ÓIafsdóttir snýr aftur til Icelandir en hún starfaði hjá flugfélaginu á árunum 2018-2021, fyrst sem forstöðumaður stuðningsdeildar flugrekstrar og síðar sem forstöðumaður leiðakerfis félagsins. Hún hefur frá þeim tíma starfað sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo en hún flutti sig yfir til upplýsingatæknifyrirtækisins í byrjun síðasta árs. Þar áður starfaði hún fyrir Landsvirkjun þar sem hún var deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði og fyrir Amazon í Evrópu, fyrst við rekstur og áætlanagerð og síðan við Kindle deild fyrirtækisins þar sem hún sá um viðskiptagreind og vöruþróun fyrir vefbækur auk þess að leiða greiningar- og stefnumótunarvinnu fyrir samningagerð við bókaútgefendur. Sylvía er með M.Sc. próf í operational research frá London School of Economics og B.Sc. próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Sylvía er stjórnarformaður Íslandssjóða og sat í stjórn Símans á árunum 2018-2020.

​Tómas Ingason, framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu

Tómas var ráðinn framkvæmdastjóri leiðakerfis og sölu í nóvember 2021. Hann var framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Icelandair frá febrúar 2019 til 2021, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs WOW air á árinu 2018 og forstöðumaður stafrænnar framtíðar hjá Arion banka á árunum 2016 til 2018. Hann starfaði einnig hjá WOW air á árinu 2014 sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunarsviðs. Fyrir þann tíma starfaði hann sem stjórnunarráðgjafi hjá Bain & Company í Kaupmannahöfn og hjá Icelandair þar sem hann var forstöðumaður tekjustýringar og verðlagningar um árabil. Tómas er með MBA gráðu frá MIT Sloan School of Management í Boston, MSc. gráðu í verkfræði frá MIT með áherslu á flugrekstur og aðfangakeðjur og BS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.