Ferðatilkynningar
Hér birtast mikilvægar upplýsingar og ferðatilkynningar frá Icelandair.
Hér birtast mikilvægar upplýsingar og ferðatilkynningar frá Icelandair.
Flugvirkjafélag Íslands hefur boðað til allsherjarverkfalls sem hefst að óbreyttu kl. 00:01 þann 23. september og fylgjumst við vel með þróun mála. Komi til verkfalls munum við gera viðeigandi ráðstafanir og aðstoða alla farþega eftir bestu getu við að komast á áfangastað en búast má við töfum og röskun á upphaflegri ferðaáætlun.
Við bjóðum farþegum okkar sem eiga bókað flug dagana 23. og 24. september að færa flugið sitt á aðra dagsetningu, háð flugframboði.
Til að tryggja að boðið sem og aðrar upplýsingar berist biðjum við farþega að ganga úr skugga um að rétt netfang og símanúmer séu skráð í Bókunin mín eða Icelandair appinu.
Við bendum farþegum sem vilja breyta flugi sínu að hægt er gera allar breytingar í gegnum Bókunin mín á vefsíðunn eða gegnum Icelandair appið.
Mikið álag er á þjónustuverinu okkar sem stendur svo biðtímar gætu verið lengri en vanalega, sérstaklega í síma. Flug þessa daga eru enn á áætlun. Við biðjum farþega sem hafa fengið boð um að breyta ferðalaginu sínu að fylgja leiðbeiningunum sem koma fram í tölvupóstinum.