Ef flugfélagið færir þig niður um farrými gætir þú átt rétt á bótum samkvæmt evrópureglugerð 261/2004. Upphæð bótanna fer eftir fjarlægð flugsins.
Öll flug sem eru 1500 km eða styttri.
Öll flug innan Bandalagsins* lengri en 1500 km** og fyrir öll önnur flug á bilinu 1500 til 3500 km.
Öll flug sem falla ekki undir ofangreint.
*Innan Bandalagsins á við um flug innan Evrópusambandsins (ESB) og EFTA löndin (Ísland, Lichtenstein og Noreg). Flug frá þessum löndum eða milli þeirra falla undir evrópureglugerð 261/2004 sem og flug með flugrekanda sem er skráður innan þessara landa.
**Að undanskildum flugum milli Evrópusvæðis aðildarríkjanna og frönsku handanhafssvæðanna.
Upplýsingar um þær eftirlitsstofnanir sem falið er að hafa eftirlit með réttindum flugfarþega er hægt að nálgast á Europa.eu.
Evrópureglugerð 261/2004 á við um ferðalög til Evrópusambandsríkja, Noregs, Sviss og Íslands ef ferðast er með flugfélagi sem er skráð í þeim ríkjum. Hún á einnig við um ferðalög frá þessum ríkjum óháð flugfélagi. Reglugerðin á ekki við um ferðalög sem bæði hefjast og enda utan þessara ríkja, t.d. ferð sem hefst í Bandaríkjunum eða Kanada og endar í Færeyjum eða Grænlandi, jafnvel þó það sé millilent á Íslandi.
Réttindi farþega þegar flug raskast geta verið mismunandi eftir brottfarar- og áfangastað. Hér að neðan finnurðu reglurnar fyrir áfangastaði okkar utan Evrópu.
Réttindi farþega á ferðalagi til og frá Bandaríkjunum
Réttindi farþega á ferðalagi til og frá Kanada
Réttindi farþega á ferðalagi til og frá Bretlandi