Sætisval
Economy fargjöld
Sætisval í aftasta hluta farþegarýmisins er innifalinn í miðanum á Economy Standard, en öll þrjú farþegarýmin (fremsta rýmið, miðjan og aftasta rýmið) eru innifalin á Economy Flex.
Sætin í fremsta og mið hluta farþegarýmisins standa farþegum á báðum þessum fargjöldum til boða, en farþegar á Economy Standard verða að greiða fyrir þessi sæti.
Sætisval er ekki innifalið í miðanum á Economy Light, þér verður úthlutað sæti þér að kostnaðarlausu. En þú getur líka fengið sæti hvar sem er í farþegarýminu gegn gjaldi.
Saga fargjöld
Sætisval er ekki innifalið í miðanum á Saga Premium, þér verður úthlutað sæti þér að kostnaðarlausu við innritun. En þú getur líka fengið sæti hvar sem er í farþegarýminu gegn gjaldi.
Sætisval er innifalið í miðanum á Saga Premium Flex.
Meira fótarými
Þú getur alltaf valið þér sæti þegar þú flýgur með Icelandair. Þú getur notast við síðuna Bókunin mín eða valið sæti þegar þú innritar þig í flug á netinu. Þér stendur líka til boða að kaupa Meira fótarými.
*Frekari upplýsingar um þessi mál er að finna á síðum okkar um forfallagjöld, börn og ungbörn og ferðalög með dýr.