Icelandair hefur verið upplýst um öryggisbrest hjá Amadeus, alþjóðlegum þjónustuveitanda sem rekur bókunarkerfi fyrir flugfélög víða um heim. Óviðkomandi aðili fékk aðgang að tilteknum bókunarupplýsingum farþega, þar á meðal bókunum tengdum Icelandair.
Til að draga úr mögulegri hættu á misnotkun hefur Icelandair ákveðið að gefa út ný bókunar- og miðanúmer fyrir þær óflognu ferðir sem atvikið varðar. Breytingarnar hafa engin áhrif á fyrirhugaðar ferðir farþega. Þeir þurfa ekki að grípa til annarra ráðstafana en að varðveita nýjar bókunar- og miðaupplýsingar sem þeim verða sendar.
Engar vísbendingar liggja fyrir um að upplýsingarnar hafi farið í frekari dreifingu eða verið misnotaðar. Icelandair hefur tilkynnt atvikið til Persónuverndar í samræmi við persónuverndarlög og almennu persónuverndarreglugerðina (GDPR). Rannsókn stendur yfir og er félagið áfram í samskiptum við Amadeus um eðli og umfang brestsins.
Hvernig veit ég hvort upplýsingar um mig tengjast atvikinu?
Icelandair sendir tölvupóst til farþega sem breytingin tekur til, með nýjum bókunar- og miðaupplýsingum.
Hvaða upplýsingar er um að ræða?
Bókunarupplýsingar farþega, svo sem nöfn, ferðaáætlanir og samskiptaupplýsingar. Rannsókn stendur yfir og Icelandair upplýsir farþega ef frekari upplýsingar gefa tilefni til.
Hafa greiðslukortaupplýsingar mínar verið í hættu?
Greiðslukortaupplýsingar í gögnunum voru afmáðar að hluta samkvæmt upplýsingum frá Amadeus og engar vísbendingar hafa komið fram um misnotkun þeirra.
Hefur þetta áhrif á ferðina mína?
Nei. Nýju bókunar- og miðanúmerin hafa engin áhrif á fyrirhugaða ferð.
Hvað á ég að gera ef bókun mín var meðal þeirra sem atvikið varðar?
Varðveittu nýju bókunar- og miðaupplýsingarnar sem þú færð sendar. Vertu á varðbergi gagnvart grunsamlegum tölvupóstum, smáskilaboðum og símtölum og opnaðu ekki tengla sem þú treystir ekki.
Hefur atvikið verið tilkynnt til Persónuverndar?
Já. Icelandair hefur tilkynnt atvikið til Persónuverndar í samræmi við GDPR og lög nr. 90/2018.
Hvert get ég leitað með fyrirspurnir?
Fyrirspurnum skal beint til [email protected].